Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar 14. maí 2026 09:02 Evrópa á við stór vandamál að stríða. Hún er að veikja sjálfa sig hraðar og með öruggari hætti en nokkurt hefðbundið stríð gæti valdið. Þegar stríðið í Úkraínu hófst stöðvaði Evrópa olíu- og gas flutninga frá Rússlandi. Þetta var ódýr orka sem hafði um áratugaskeið verið undirstaða stórs hluta evrópsks iðnaðar og samkeppnishæfni. Áður hafði Evrópa markvisst lokað kjarnorkuverum sínum. Í stað þess að njóta áfram ódýrrar orku fór Evrópa inn á braut aukinnar hervæðingar með gífurlegum kostnaði fyrir samfélögin. Vopnaframleiðsla skilar arði í stríði með landvinningum. En hvaða landvinninga er Evrópa að vinna? Ef stríðið í Úkraínu stöðvaðist í dag er líklegt að Rússar héldu stórum hluta þess lands sem þeir hafa náð. Það væri vissulega verri niðurstaða, en þegar mannfall, samfélagsleg eyðilegging og efnahagslegur kostnaður eru metin í heild verður sífellt erfiðara að réttlæta áframhaldandi átök. Látið er eins og landamæri hafi aldrei breyst, landamæri hafa um árþúsundir sífellt verið að breytast. Báðir aðilar Rússar og Úkraína verða og virðast nú vera að stíga skref í þá átt. Samhliða þessu hefur Donald Trump þrýst á Evrópuríki að hækka framlög sín til NATO verulega og lagt á tolla. Evrópa hefur lagst lágt og að mestu gengið að þeim kröfum. Þessi aukni hernaðar og tolla kostnaður leggst ofan á þann samdrátt og gríðarlega kostnað sem þegar hefur hlotist af stríðinu í Úkraínu. Margir velta því nú fyrir sér hvort markmiðið hafi frá upphafi einnig verið að veikja efnahagslega stöðu Evrópu gagnvart Bandaríkjunum. Með yfirtöku Venesúela var markmiðið ekki að ná yfirráðum yfir olíunni heldur hitt að aðrir fengju hana ekki. Evrópskir leiðtogar virðast jafnframt veikburða upp til hópa. Fáir þeirra njóta raunverulegs stuðnings meirihluta þjóðarinnar og víða mælist stuðningur við ríkisstjórnir og ráðandi stjórnmálaöfl mjög lítill eða 10-20%. Því upplifa margir að Evrópa búi í raun við eins konar elítustjórnarfar þar sem almenningur finnur sig síður og síður tengdan ákvörðunum stjórnvalda. Á sama tíma skortir Evrópu sameiginlega framtíðarsýn. Fólk vill framfarir, aukna velmegun og öryggi fyrir fjölskyldur sínar. Í stað þess upplifa margir að hagsmunir stórfyrirtækja og fjármálakerfisins séu settir ofar hagsmunum almennings. Áður streymdi ódýr olía og gas í leiðslum frá Rússlandi beint til heimila og verksmiðja Evrópu. Nú kaupir Evrópa sömu vöru á þreföldu verði frá öðrum mörkuðum. Afleiðingarnar eru þegar sýnilegar. Þýskur iðnaður flytur í auknum mæli úr landi og fyrirtæki eins og BASF og Volkswagen hafa dregið saman starfsemi eða lokað verksmiðjum. Þetta gerðu Rússar ekki. Evrópa tók þessar ákvarðanir sjálf. Á sama tíma er vopnaframleiðsla komin á það stig að erfitt er að finna sambærilega þróun nema með því að líta aftur til heimsstyrjaldanna. Stríðið við Íran og önnur nýleg átök hafa einnig sýnt að hátæknivopn og gríðarlega dýr hergögn reynast oft ekki jafn afgerandi og lofað var. Á meðan græða vopnaframleiðendur gríðarlega og fá stöðugt aukið fjármagn inn í kerfið. Julian Assange sagði eitt sinn að krafa elítunnar í USA væri stöðugt og áframhaldandi stríð. Hann er horfinn og hvar er Edward Snowden? Þaggað hefur verið niður í þeim báðum. Hver skyldi standa á bak við það? Gæti það verið elítan sem hagnast meira og meira, og mest á því að ekki komist upp um athæfi hennar? Rússland er vissulega einnig að veikja sig með miklum hernaðarútgjöldum, efnahagsþrýstingi og skemmdum á olíuinnviðum sínum. En Evrópa virðist vera að feta sömu braut, þó með öðrum hætti. Gleimum þó ekki þeirri staðreynd að Rússland er í Evrópu. Og á meðan brosa vopnaframleiðendur hringinn. Þegar litið er til Norðurslóða og ríkjanna við Norður-Atlantshaf blasir við önnur mynd. Bretland, Noregur, Færeyjar, Ísland, Grænland og Canada standa utan við meginstefnu Evrópusambandsins og USA. Ekkert þeirra er í ESB og ekkert ríki ESB liggur að Norður atlantshafi nema Írland en öll eru þau í NATO. Þessi lönd skortir einnig sterka leiðtoga, skýra framtíðarsýn og markmið. Forsætisráðherra Kanada Mark Carney virðist standa sterkast af leiðtogum þessara þjóða núna. Þessi ríki eiga sameiginlega gríðarlega mikilvæga hagsmuni: Norður-Atlantshafið, nýjar siglingaleiðir, fiskimið, olíu- og gaslindir, sjaldgæfa málma og aðrar auðlindir sem munu skipta sífellt meira máli á næstu áratugum. Raunin er jafnframt sú að Bandaríkin hafa safnað slíkum skuldum að mörgum þykir ólíklegt að þær verði nokkurn tíma greiddar að fullu. Staða dollarans sem heimsmyntar veikist stöðugt og áhrif petrodollarsins á leið að hverfa. Evrópa og Rússland eru að sumu leyti á svipaðri braut, þó mislangt komin. Það þarf að stöðva stríðið í Úkraínu. Tapið verður að öllum líkindum aldrei minna en það er núna, en gæti orðið margfalt meira ef átökin halda áfram árum saman. Norður-Atlantshafsríkin áðurnefndu þurfa að móta sér sérstöðu, byggja upp sterkari sameiginlega hagsmuni og skapa eigin framtíðarsýn. Að öðrum kosti eiga þau á hættu að dragast niður með þeim stórveldum sem nú glíma við vaxandi efnahagslegan og pólitískan veikleika. Höfundur er löggiltur fasteignasali. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar G. Harðarson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar