Dagbjartur einu skrefi frá Opna bandaríska Sindri Sverrisson skrifar 13. maí 2026 11:17 Dagbjartur Sigurbrandsson er ríkjandi Íslandsmeistari. GSÍ Dagbjartur Sigurbrandsson, Íslandsmeistari í golfi, tryggði sér í gær sæti í lokaúrtökumótinu fyrir Opna bandaríska mótið, eitt risamótanna fjögurra.
Dagbjartur var á meðal fjölmargra sem freistuðu þess að komast inn á lokaúrtökumótið en aðeins fjögur sæti voru í boði á mótinu sem fram fór á Berkshire Hills í gær. Þar endaði Dagbjartur jafn tveimur öðrum í 2. sæti, á -2 höggum, einu höggi á eftir Jared Nelson sem varð efstur. Lokaúrtökumótið fyrir Opna bandaríska mótið skiptist niður á þrjá daga, eða 18. maí, 25. maí og 8. júní, og leikur hver kylfingur 36 holur á einum þessara daga, um sæti á risamótinu virta. Margir af sterkustu kylfingum heims, sem ekki hafa þegar tryggt sér þátttökurétt, verða á meðal keppenda. Þetta er annað árið í röð þar sem Dagbjartur leikur á lokaúrtökumótinu fyrir Opna bandaríska. Síðast lék hann meðal annars með risamótsmeistaranum Padraig Harrington og Svíanum Alex Noren en komst ekki áfram.
Golf Opna bandaríska Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira