Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar 13. maí 2026 08:52 Nú heyrist víða fullyrt að „Samfylkingin þurfi frí“ frá stjórn Reykjavíkurborgar. Klárlega geta fylgt áskoranir langvarandi setu við völd og mikilvægt og vera meðvituð um þær. En þá þarf að ræða líka kostina við samfellu við stjórn. Þess fyrir utan verðum við líka að horfa á önnur sveitarfélög ef við ætlum að ræða þaulsetu af alvöru. Í öðrum sveitarfélögum hefur Sjálfstæðisflokkurinn setið við völd nánast samfellt í áratugi, jafnvel miklu lengur en nokkur flokkur í Reykjavík. Í Garðabæ hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið samfellt í meirihluta síðan 1966. Það eru sex áratugir. Í Kópavogi hefur flokkurinn verið nær óslitið við stjórnvölinn frá því snemma á sjöunda áratugnum. Þetta eru ekki bara löng tímabil heldur valdatími sem spannar heilar kynslóðir. Samt er fáheyrt að talað sé um að Garðabær „þurfi frí“ frá Sjálfstæðisflokknum. Sjaldan er sagt að Kópavogur sé orðinn fórnarlamb langvarandi þaulsetu sama flokks. Þvert á móti er stöðugleikinn þar oft kynntur sem dyggð, merki um traust, festu og góða stjórn. Þar liggur ákveðin mótsögn í íslenskri stjórnmálaumræðu. Þegar vinstriflokkar stjórna lengi er talað um þreytu og nauðsyn uppstokkunar. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn stjórnar lengi er talað um reynslu og stöðugleika. Auðvitað er ekkert sjálfgefið að langur valdatími sé slæmur en umræðan verður að vera samkvæm sjálfri sér. Er ástæðan sú að það er hálfgert norm í íslensku samfélagi að Sjálfstæðisflokkurinn sé við völd en valdaseta vinstriflokka talin frávik? Ef við teljum að seta Samfylkingarinnar í meirihluta í Reykjavík síðan 2010 sé hættumerki í Reykjavík, hvað þá um 60 ár annars staðar? Ef lýðræðislegt heilbrigði krefst reglulegrar endurnýjunar, ætti sú regla þá ekki að gilda alls staðar, líka þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið ráðandi lengur en nokkur annar flokkur á Íslandi? Svo má líka spyrja sig hvort langur valdatími sé sjálfkrafa vandamál. Svarið er líklega nei. Stór samfélagsverkefni klárast nefnilega ekki á einu kjörtímabili. Þau spyrja ekki um fjögurra ára hringrás stjórnmálanna og ef stjórnmálin myndu einungis fást við verkefni sem tæki fjögur ár að ljúka yrði lítil framþróun. Uppbygging innviða, skipulagsmál, húsnæðisuppbygging og samgöngur eru verkefni sem taka oft áratug eða meira frá fyrstu hugmynd að framkvæmd. Það á jafnt við um Borgarlínuna og önnur stór verkefni, hvort sem það eru skólar, fráveitur, samgöngumannvirki eða uppbygging nýrra hverfa. Slík verkefni krefjast þolinmæði, samfellu og pólitísks þreks til að halda stefnu þó mótvindur blási tímabundið. Þess vegna getur stöðugleiki í stjórn líka verið styrkur. Vandinn er ekki endilega hversu lengi fólk situr við völd heldur hvort flokkum verði eitthvað ágengt. Lýðræðið snýst ekki um sjálfvirka skiptingu valds heldur raunverulegt val kjósenda og kjósendur eru fullfærir um að skipta um stjórn þegar þeir vilja það. Kannski ættum við því að hætta að mæla lýðræðislegt heilbrigði eingöngu í fjölda ára við völd. Miklu mikilvægara er hvort stjórnvöld skili árangri, hafi framtíðarsýn og njóti áfram trausts fólks. Stór verkefni samfélagsins þurfa gjarnan meira en eitt kjörtímabil. Stundum er samfella í stjórnun einfaldlega forsenda þess að ná raunverulegum og varanlegum árangri. Borgarlínan spyr nefnilega ekki um kosningadagatöl. Samgöngusáttmálinn gerir það ekki heldur. Bílaborgin fékk marga áratugi til að verða að veruleika og því er eðlilegt að það taki líka tíma að vinda ofan af henni. Spurningin sem kjósendur standa frammi fyrir er því ekki fyrst og fremst hvaða flokkar hafi setið lengi við völd, heldur hvaða framtíðarsýn þeir hafa fyrir borgina. Hvort við ætlum að halda það út að byggja borg fyrir fólk og fjölbreytta ferðamáta svo þeir megi loksins verða raunverulegur valkostur. Eða þá að gefast upp og bakka aftur inn í fortíð þar sem einkabíllinn er eina raunhæfa leiðin til að komast leiðar sinnar. Valið er þitt. Höfundur er áhugamanneskja um mannvænni borg og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar