Oddvitaáskorunin: Of margir Liverpool-aðdáendur á listanum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. maí 2026 07:02 Jólamynd af fjölskyldunni. Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Svavar Grétarsson er oddviti Samfylkingarinnar og óháðra í Suðurnesjabæ. Ég heiti Svavar Grétarsson og er 41 árs. Ég er fæddur og uppalin Sandgerðismegin í Suðurnesjabæ. Ég er giftur Helenu Ástu Hreiðarsdóttur og eigum við saman 3 börn, Sesselju Ástu, Heiðdísi Svölu og Hafþór Orra. Ég starfa sem Flotastjóri hjá Enterprise bílaleigu og hef í gegnum árin verið virkur í samfélagsmálum hér í bænum. Ég hef setið sem varabæjarfulltrúi og tekið þátt í nefndarstörfum, nú síðast sem formaður íþrótta og tómstundaráðs. Ég hef einnig verið virkur í björgunarsveitarstarfi og setið í stjórn þar, sem hefur kennt mér mikilvægi samvinnu, ábyrgðar og þess að fólk standi saman þegar á reynir. Ég brenn fyrir því að leggja mitt af mörkum til samfélagsins og vinna að jákvæðri þróun bæjarins okkar. Í frítímanum mínum er ég svo forfallinn golfari og nýt þess að verja tíma með fólkinu mínu. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Á Akranesi, er ættaður þaðan og finnst alltaf jafn gott að koma á Skagann.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Ég er lítill lestrarhestur svo ég get ekki nefnt neina sérstaka bók.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Ef það þyrfti að skera niður myndi ég líklega fyrst horfa á framkvæmdir sem gætu beðið aðeins frekar en að skera niður grunnþjónustu við íbúa. Áherslan yrði alltaf að verja lögbundna þjónustu, velferðar, mennta og íþróttastarf eins og kostur er. En sem betur fer er Suðurnesjabær nokkuð vel rekinn og ég tel mikilvægara að horfa í leiðir til að auka tekjur sveitarfélagsins heldur en að fara í niðurskurð.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Þær færu í börnin okkar og eldri borgara. Gjaldskrár, íþrótta- og tómstundamál og félagsstarf.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Bíddu aðeins ég er í símanum” Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Hringja ekki spurning miklu skilvirkara og fljótlegra.“ Á mínum uppáhaldsstað á Kirkjubólsvelli Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Ég held með Manchester United það eru allt of margir Liverpool aðdáendur á listanum okkar.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Ég væri til í að geta multitaskað, er hræðilegur í því. Einnig væri ég mikið til í að kunna á gítar.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Staðsetning gervigrasvallar.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Að finna bestu uppskriftina af íslenskri kjötsúpu.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Við erum opin fyrir samtali við alla flokka eftir kosningar. Málefnin koma til með að skipta lang mestu máli.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Að hafa ekki klárað meira nám, fannst það svo leiðinlegt þá en galið í dag að hafa ekki klárað meira.“ Ég, Bergný og Egill sem eru í öðru og þriðja sæti S-listanns ásamt þingmönnum okkar Víði og Ásu Berglindi eftir frábært 1. maí kaffi sem við héldum. Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Allt skólastarf í sveitafélaginu er frábært, hér býr gott og kraftmikið fólk, náttúran skemmtileg og tækifæri í nánast hverju horni. Hér eru einnig frábær íþróttafélög og félagasamtök.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Ískaldur Nocco limon.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Aðallega hægagangur. Við þurfum að ganga hratt og örugglega í verkefnin, þurfum samt að vanda vel til verka og við þurfum að auka samskipti á milli stjórnenda og bæjarfulltrúa.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Mér finnst raunhæft að við getum byggt upp samheldið samfélag, samfélag sem hugar vel að íbúum og það er mjög mikilvægt að við setjum kraft í uppbyggingu innviða“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Creep með Radiohead“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveit arfélagi undanfarin ár? „Mistökin síðustu ár hafa kannski helst falist í því að ákveðin mikilvæg verkefni hafa dregist of lengi, meðal annars uppbygging íþróttaaðstöðu sem nú er orðið tímabært að ráðast í af fullum krafti. Einnig teljum við að leggja hefði mátt meiri áherslu á „litlu“ málin sem skipta íbúa miklu í daglegu lífi, eins og leikvelli, útivistarsvæði, fegrun bæjarins og gott viðhald á sameiginlegum eignum sveitarfélagsins, til dæmis Samkomuhúsunum.“ Við sjáum líka tækifæri í því að efla enn frekar jákvæða ímynd sveitarfélagsins, styrkja tenginguna milli byggðakjarnanna og skapa skýrari miðpunkt fyrir samfélagið allt.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Heima hjá mér er ég ansi oft kallaður Símon, á það víst til að vera ansi mikið í símanum“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Við ætlum í markvissa vinnu við að lækka álögur á íbúa Við ætlum að tryggja barnafjölskyldum lægri leikskólagjöld Við ætlum að hlúa vel að eldri borgurunum okkar Við ætlum að fjárfesta í íþrótta og tómstundamálum barna og ungmenna Við ætlum að tryggja að Suðurnesjabær verði framúrskarandi velferðarsamfélag Við ætlum að halda áfram að byggja upp frábæran Suðurnesjabæ Við ætlum að fara yfir skipulagsmálin betur með sameiningu sveitarfélagsins sem leiðarljós.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Suðurnesjabær Samfylkingin Mest lesið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Fleiri fréttir Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Sjá meira