Tækifæri í rusli Lísbet Sigurðardóttir skrifar 13. maí 2026 06:21 Sorpþjónusta hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með auknum kröfum um flokkun úrgangs og tækniframförum sem skapa tækifæri til að auka hagkvæmni. Sum sveitarfélög hafa nýtt þessi tækifæri með því að virkja krafta samkeppni á meðan önnur halda þjónustunni í óbreyttri mynd með umfangsmiklum opinberum rekstri. Afleiðingin er hærri kostnaður og lakari þjónusta. Kostnaður vegna sorpþjónustu hefur tvöfaldast umfram verðlag síðustu ár og vaxið mun meira en aðrir liðir tengdir rekstri heimila eins og húshitun, fráveita og vatn (mynd 1). Frá gildistöku nýrra laga um meðhöndlun úrgangs árið 2021 hafa gjöldin hækkað um nærri 50% að raunvirði. Þetta eru hækkanir sem heimili finna fyrir. Samkeppni lækkar kostnað Viðbrögð skrifstofustjóra skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg í svargrein hér á Vísi vegna úttektar Viðskiptaráðs á sorpþjónustu eru athyglisverð af nokkrum ástæðum. Skrifstofustjórinn fullyrðir að fákeppni ríki í sorphirðu og því sé óskynsamlegt að bjóða út þjónustuna. En réttari lýsing á stöðunni fyrir heimili í Reykjavík er einokun, enda samkeppnin engin. Önnur stór sveitarfélög hafa virkjað krafta samkeppninnar og þar virðist sem bæði hagkvæmni hafi aukist og þjónusta batnað. Akureyri er þar gott dæmi. Þegar bæjarfélagið bauð út sorphirðu í fyrsta sinn árið 2010 var tilboð Gámaþjónustu Norðurlands 54% undir kostnaðarmati bæjarins og útvistunin sparaði sveitarfélaginu um 700 milljónir króna á 8 árum. Með því að skipta þjónustu upp í fleiri útboð og afmarka verkefni betur er hægt að skapa virkari samkeppni og opna markaðinn fyrir fleiri aðilum. Skýring skrifstofustjórans um að kerfisbreytingar Akureyrarbæjar hafi ráðið kostnaðarlækkuninni en ekki útvistun þjónustunnar stenst illa, því kostnaðarmat bæjarins var miðað við útvistun. Tilboð einkaaðilans var því lægra en kostnaðarmat bæjarins miðað við nýtt fyrirkomulag og útvistun, en ekki fyrra fyrirkomulag. Að bera saman epli og epli Skrifstofustjórinn heldur því einnig fram að samanburður Viðskiptaráðs sé villandi og að þjónustan í Reykjavík sé bæði hagkvæm og íbúar séu ánægðir. Greining ráðsins byggði hins vegar á opnum og samanburðarhæfum gögnum þar sem miðað var við heimili með tvær tvískiptar tunnur ásamt föstu gjaldi vegna grenndargáma. Gagnrýnt er að aðeins hluti heimila sé með slíka tunnusamsetningu, en jafnframt er vísað til upplýsinga sem hvorki eru opinberar né settar fram með sambærilegum hætti milli sveitarfélaga. Í greininni er jafnframt fullyrt að „raunkostnaður“ í Reykjavík sé um 60.800 krónur á heimili með tilliti til grenndar- og endurvinnslustöðva. Sá kostnaður er ekki settur fram með sambærilegum hætti gagnvart öðrum sveitarfélögum, sem gerir samanburð ómögulegan, enda óljóst hvort um sé að ræða heildstæða kostnaðarmynd. Í opinberum rekstri getur kostnaður einnig komið fram í formi taprekstrar sem lendir á útsvarsgreiðendum, en í útboðum er heildarkostnaður þjónustunnar bæði sýnilegur og fastsettur í samningi. Útboð skila árangri Auk lægri kostnaðar skilar aukin samkeppni betri þjónustu. Niðurstöður könnunar meðal sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins sýna að ánægja með tæmingu sorptunna er mest í þeim sveitarfélögum sem hafa virkjað krafta samkeppni með því að bjóða út þjónustuna. Reykjavíkurborg sker sig úr í þessum hópi að því leyti að þar er sorphirða ekki boðin út, en þar telja íbúar tæmingu sorps ganga verst. Á sama tíma hafa ítrekað komið upp fréttir af töfum, fullum tunnum og þjónustuvandamálum í borginni. Dæmi um slíkt er þegar eldur kviknaði í sorphirðubíl á vegum borgarinnar þurfti hún að leita til einkaaðila til að halda þjónustunni gangandi, sem gefur til kynna að borgin hafi síður svigrúm til að takast á við aukið álag eða óvæntar uppákomur í sorphirðu. Engin samkeppni í sorpmóttöku Þegar horft er einu skrefi lengra í sorpþjónustu, frá sorphirðu (þegar sorpið er sótt) til sorpmóttöku (þegar tekið er á móti sorpi eftir að það hefur verið sótt) birtist önnur mynd. Á höfuðborgarsvæðinu er engin samkeppni í sorpmóttöku þar sem sveitarfélögin sinna verkefninu sameiginlega í gegnum Sorpu án útboðs. Sorpa hefur því 100% markaðshlutdeild í móttöku heimilisúrgangs á höfuðborgarsvæðinu. Þegar einn opinber aðili er ráðandi á markaðnum verða hvatar til hagræðingar og þjónustubóta veikari. Þá verður líka erfiðara að fá gagnsæi um raunverulegan kostnað og árangur. Í dag er um 90% af starfsemi Sorpu á samkeppnis-mörkuðum. Í flestum tilfellum er starfsemin í beinni samkeppni við innlenda einkaaðila, t.d. starfsemi endurvinnslustöðva og Góða hirðisins en flestum þáttum þjónustunnar hafa einkaaðilar sinnt annað hvort hérlendis eða erlendis með góðum árangri. Í grein skrifstofustjórans endurspeglast áhyggjur af því að útvistun sorphirðu sé áhættusöm. Núverandi fyrirkomulag í Reykjavík er hins vegar það áhættusama, þar sem rekstrartengd áhætta hvílir á útsvarsgreiðendum. Kostnaðar¬framúrkeyrslur, veikleikar í stjórnsýslu og skortur á skýrri ábyrgð hafa þannig verið dæmi um hnökra í rekstri Sorpu og tengdra félagaa. Greinileg tækifæri eru til þess að endurskoða reksturinn og takmarka störf Sorpu við stjórnsýslu, útboð og eftirlit en samkeppnisrekstur verði alfarið boðinn út eða seldur. Markmið sorpþjónustu á að vera að tryggja íbúum góða þjónustu með sem skilvirkustum hætti. Til þess þarf gagnsæi, samanburð og virkari samkeppni. Umræðan á að snúast um bætta þjónustu sveitarfélaga og hvernig best sé hægt að nýta fjármuni heimila og sveitarfélaga en ekki varðstöðu um opinbera einokun. Höfundur er lögfræðingur Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sorphirða Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar