Mun lægri gjöld en úttekt Viðskiptaráðs gefur til kynna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. maí 2026 20:48 Guðmundur Benedikt Friðriksson skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg Bylgjan Skrifstofustjóri á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg segir soprhirðugjöld í borginni mun lægri en úttekt Viðskiptaráðs gefi til kynna. Gjöldin sem miðað var við í úttektinni séu fyrir sérstök ílát.
Fyrir helgi birti Viðskiptaráð úttekt á sorpþjónustu í stærstu sveitarfélögum landsins. Þar kom fram að kostnaður vegna sorpþjónustu hefði hækkað nærri tvöfalt hraðar en almennt verðlag, alls um 104 prósent að raunvirði frá árinu 2008. Þar kom einnig fram að sorphirðugjöldin væru dýrust í Reykjavíkurborg, eða 85 þúsund krónur á ári. Lægst væru þau í Reykjanesbæ, eða 62 þúsund krónur. Guðmundur Benedikt Friðriksson, skrifstofustjóri á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg, segir sorphirðugjöldin hins vegar mun lægri. „Ég tók saman svona athugasemdir við þennan samanburð Viðskiptaráðs, sem nær eingöngu til lítils hlut af sorpílátum í Reykjavík og íláts sem borgin verðleggur hærra en nágrannasveitarfélög,“ segir Guðmundur sem ræddi málin í Reykjavík síðdegis. Hann bendir á að ef Viðskiptaráð hefði borið saman kostnað plasttunnurnar við önnur nágrannasveitarfélög væri Reykjavíkurborg 30 prósentum lægri en Garðabær, 11 prósentum lægri en Kópavogur og 23 prósentum lægri en Hafnarfjörður. „Þannig að þetta er spurning um hvaða ílát maður tekur.“ Sextíu þúsund, ekki 85 Tekið var fram í úttektinni að könnun um sorphirðu sem vísað var í er þriggja ára gömul. Þá ræddi Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs, um úttektina í Reykjavík síðdegis í gær og kom hún inn á að ráðið hefði ekki haft aðgang að öllum gögnum. „Viðskiptaráð bar sig nú ekkert mikið eftir þeim og velur þarna þessa tunnutegund en bókhald borgarinnar er opið og þar má bara sjá hvað við rukkum íbúa Reykjavíkur um há sorphirðugjöld í heildina, öll heimilin,“ segir Guðmundur. Hann vísar í opinber gögn frá Reykjavíkurborg sem alls rukki rúmar 2300 milljónir fyrir að sækja úrganginn og flytja hann á réttan stað, 1300 milljónir fyrir rekstur á grenndar- og endurvinnslustöðvum. Það gera rúmar 3600 milljónir sem er deilt á rúmlega sextíu þúsund íbúðir. „Þetta eru rétt rúmar sextíu þúsund krónur á heimili í Reykjavík en ekki 85 þúsund,“ segir hann. „Við höfum svo sem borið okkur saman líka við nágrannasveitarfélög. Ég á reyndar ekki tölur nýrri en nóvember 2024, en þá fékk ég tölu fyrir Garðabæ og Kópavog og vorum við í báðum tilfellum lægri.“ Sjö prósent Guðmundur segir úttekt Viðskiptaráðs einungis ná til íláta sem sjö prósent íbúa í Reykjavík séu með. Þá er svokallað fimmtán metra gjald lagt á um tuttugu prósent íláta í borginni. Fimmtán metra gjaldið er tíu þúsund krónur á ílát fyrir blandaða sorpið en 3200 krónur fyrir ílát með endurvinnsluefnum. Alls starfa 65 við það að sækja ílátin og aka hirðubílunum. Það fjölgaði töluvert í þeim hópi árið 2023 þegar endurvinnsluílátum var komið fyrir við öll heimili. „Nágrannasveitarfélög okkar komu með okkur í þessa vegferð, við gerðum þetta sameiginlega og þá fjölgaði okkur nokkuð vegna þess að það er miklu umfangsmeira að labba að hverju heimili og sækja endurvinnsluhluti.
Reykjavík síðdegis Sorphirða Reykjavík Bylgjan Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira