Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Jakob Bjarnar skrifar 7. maí 2026 15:46 Bjarni Þór Hannesson er yfirvallarstjóri Mosfellinga og fáir ef nokkrir vita eins mikið um gras og svörð og hann. Bjarni Þór ríður á vaðið og verður fyrstur á höfuðborgarsvæðinu til að opna sinn völl. vísir/vilhelm/Golfklúbburinn Mosfellsbæ Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur gefið út tilkynningu um að Hlíðavöllur verði opnaður 11. maí. Mosfellingar eru fyrstir á höfuðborgarsvæðinu til að hleypa kylfingum á grasið. „
Veðurspáin er góð fyrir komandi helgi, rigning og hiti. Svo eru veðurspárnar nokkuð sammála um að næsta vika verði bara nokkuð góð,” segir í tilkynningunni en Mosfellingar eru þar með fyrstir á höfuðborgarsvæðinu til að opna golfvöll sinn. Áður hafa Suðurnesjamenn opnað sína velli auk Hellu: Þorlákshöfn, Grindavík, Sandgerði, Leiran og Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd hafa allir opnað sína velli og þar hefur allt verið pakkað þrátt fyrir napra veðráttu. Golfæðið virðist vera að ná einhvers konar hástigi. Mosfellingar verða með árlegan vinnudag nú á laugardaginn og fá allir sem þar mæta að forbóka sig í golf næstu viku en að þetta sé tekið sérstaklega fram þýðir að Mosfellingar eru viðbúnir því að þurfa að taka á móti miklum fjölda. Víst er að stjórnmálamenn eru sumir hverjir teknir að vakna, enda að koma kosningar. Sumir þeirra lofa fleiri völlum en forysta Golfsambandsins hefur, samhliða því að reka grimman áróður fyrir því hversu svakalega gaman sé í golfi með þeim afleiðingum að allir klúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru komnir með langa biðlista, hamrað á nauðsyn þess að fleiri golfvellir séu byggðir. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi hefur lýst því yfir að hún sé hlynnt því að nýr golfvöllur verði reistur í Kópavogi. Framsóknarmenn í Reykjavík hafa einnig talað fyrir þessu sem og Örn Geirsson frambjóðandi Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. „Veðurspáin er mjög hagstæð um helgina, góður hiti og talsvert af vætu. Við ætlum því að gefa vellinum helgina til þess að jafna sig eftir þennan kuldakafla síðustu daga. Völlurinn lítur virkilega vel út og mun taka vel á móti ykkur á mánudaginn,“ segir í tilkynningu. Opnað verður fyrir rástímaskráningu klukkan 14 á laugardag. Hlíðavöllur er eingöngu opinn fyrir félagsmenn í GM til þess að byrja með.
Golfvellir Golf Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mosfellsbær Tengdar fréttir Nýr golfvöllur verði útivistarparadís fyrir Hafnfirðinga Formaður starfshóps sem Hafnarfjarðarbær hefur skipað til að finna staðsetningu fyrir nýjan golfvöll segist líta til þess að hann verði að almennu útivistarsvæði fyrir bæjarbúa. Báðir golfklúbbar bæjarins eru áhugasamir um að reka nýjan völl. 3. febrúar 2025 07:00 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
Nýr golfvöllur verði útivistarparadís fyrir Hafnfirðinga Formaður starfshóps sem Hafnarfjarðarbær hefur skipað til að finna staðsetningu fyrir nýjan golfvöll segist líta til þess að hann verði að almennu útivistarsvæði fyrir bæjarbúa. Báðir golfklúbbar bæjarins eru áhugasamir um að reka nýjan völl. 3. febrúar 2025 07:00