Markið frá Kane gæti reynst óhemju dýrmætt fyrir allt annað lið Sindri Sverrisson skrifar 7. maí 2026 12:03 Harry Kane skoraði í gær en Bayern rétt missti af sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Getty/Alex Grimm Jöfnunarmark Harry Kane fyrir Bayern gegn PSG í gærkvöld dugði ekki til að koma Bayern í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Markið gæti hins vegar endað á að skila þýsku liði í keppnina á næstu leiktíð.
UEFA veitir tvö aukasæti í Meistaradeildinni eftir hverja leiktíð, til þjóðanna tveggja sem ná bestum árangri í Evrópukeppnunum þremur. England er þegar búið að tryggja sér fimmta sætið fyrir sín lið, með árangrinum í vetur, en baráttan á milli Spánar og Þýskalands um að fá hitt aukasætið er hnífjöfn og spennandi. Í þeirri baráttu hjálpaði jöfnunarmark Kane afar mikið til. Það tryggði Þýskalandi 0,412 stig á styrkleikalista UEFA og gerir kvöldið í kvöld afar spennandi. Spánn er enn fyrir ofan Þýskaland, með 21,781 stig gegn 21,357 stigum Þýskaland. Þarna munar því 0,424 stigum og Freiburg gæti einmitt bætt 0,428 stigum við fyrir Þýskaland í kvöld. 🚨 To Secure an Extra Champions League spot:🇪🇸 Spain - 86%🇩🇪 Germany - 14%💥 Both Spain and Germany have a chance to mathematically claim an extra Champions League spot on Thursday night!(% per @LukaszBoz) pic.twitter.com/bsabB3APHw— Football Rankings (@FootRankings) May 7, 2026 Eitt þýskt lið er enn með í Evrópukeppni, Freiburg í undanúrslitum Evrópudeildarinnar, og eitt spænskt sem er Rayo Vallecano í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar. Þýsku liðin treysta á Freiburg í kvöld Ef að Freiburg vinnur Braga í kvöld og kemst í úrslitaleik Evrópudeildarinnar en Rayo Vallecano tapar fyrir Strasbourg í Frakklandi, þá kemst Þýskaland upp fyrir Spán og fær aukasæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. En ef að Rayo Vallecano vinnur í kvöld þá er öruggt að Spánn færi aukasætið í Meistaradeildinni. Sama niðurstaða fæst ef bæði Freiburg og Rayo Vallecano falla út í kvöld. Ef bæði lið komast áfram þá fæst niðurstaðan í úrslitaleikjunum. Real Betis mögulega á leið í Meistaradeildina Það verða því margra augu á leikjunum í kvöld. Real Betis er í 5. sæti spænsku deildarinnar, sex stigum á undan Celta Vigo þegar fjórar umferðir eru eftir, og yrði því komið langleiðina í Meistaradeild Evrópu ef Rayo Vallecano ynni í kvöld. Í þýsku deildinni er hins vegar afar jöfn barátta á milli Leverkusen, Stuttgart og Hoffenheim um 4. sætið því liðin eru öll með 58 stig þegar tvær umferðir eru eftir. Eitt þessara liða kemst í Meistaradeildina og svo mögulega annað, ef að Freiburg tekst að bæta ofan á markið frá Kane og tryggja Þýskalandi aukasæti.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Þýski boltinn Spænski boltinn Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Sjá meira