Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Kjartan Kjartansson skrifar 7. maí 2026 09:08 Hildur Björnsdóttir (t.h.) og félagar í Sjálfstæðisflokknum eru með pálmann í höndunum ef marka má kosningaspá Vísis. Vísir/Vilhelm Tæplega helmingslíkur eru nú á því að Sjálfstæðisflokkurinn nái inn áttunda borgarfulltrúum samkvæmt uppfærðri kosningaspá Vísis. Flokkurinn er á mikilli siglingu og nálgast tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna. Kosningaspá Vísis sem Baldur Héðinsson stærðfræðingur gerir hefur verið uppfærð eftir að ný könnun Maskínu á fylgi framboða til borgarstjórnar var birt í gær. Sjálfstæðisflokknum hélt áfram að vaxa ásmegin á sama tíma og enn frekar fjaraði undan Samfylkingunni í könnuninni. Samfylkingin hefur nú tapað um átta prósentustigum frá því í könnun fyrirtækisins í janúar. Þegar tekið hefur verið tillit til nýju könnunarinnar nálgast Sjálfstæðisflokkurinn tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna í kosningaspánni. Munurinn var hálft prósentustig Samfylkingunni í vil þegar fyrsta kosningaspáin var birt 7. apríl. Sjálfstæðisflokkurinn nálgast þrjátíu prósenta fylgi en Samfylkingin er komin niður fyrir tuttugu prósentin. Nú eru meiri líkur en minni á að Sjálfstæðisflokkurinn nái inn sjö mönnum og sá áttundi, Bjarni Fritzson á tæplega helmingslíkur á að ná kjöri samkvæmt spánni. Samfylkingin, sem stefndi á sex borgarfulltrúa fyrir mánuði, á nú orðið í hættu á að missa fimmta manninn. Stein Olav Romslo mælist nú með sextíu prósent líkur á að ná inn. Líkur hans voru 95 prósent í fyrstu útgáfu kosningaspárinnar fyrir mánuði. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá 7. maí Syrtir í álinn fyrir Miðflokkinn Vinstrið bætir við sig rúmum tveimur og hálfu prósenti á milli kannana Maskínu og Framsóknarflokkurinn tæpur tveimur. Fylgi Miðflokksins dregst aftur á móti saman um 3,3 prósentustig. Fram að þessu hafa Vinstrið, Viðreisn og Miðflokkurinn mælst á svipuðu róli og barist um að ná inn þremur borgarfulltrúum. Í uppfærðu kosningaspánni syrtir töluvert í álinn fyrir Miðflokkinn. Kristín Kolbeinsdóttir, annar maður á lista flokksins, á nú 58 prósent líkur á að komast inn en fyrir mánuði átti Lárus Blöndal, þriðji maður listans, um helmingslíkur á kjöri samkvæmt spánni. Stefán Pálsson verðandi borgarfulltrúi Vinstrisins?Vísir/Vilhelm Á móti fara líkur Stefáns Pálssonar, þriðja manns á lista Vinstrisins, á að ná kjöri áfram vaxandi. Þær eru nú áttatíu prósent en voru sjötíu prósent í síðustu útgáfu spárinnar og 52 prósent í þeirri fyrstu fyrir mánuði. Þorvaldur Davíð Kristjánsson, þriðji maður á lista Viðreisnar, er nú með 62 prósent líkur á að ná inn en þær voru innan við helmingur eftir síðustu uppfærslu á spánni í byrjun þessarar viku. Þrír flokkar eiga möguleika á manni Framsóknarflokkurinn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn keppast nú um að ná einum manni inn. Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti sósíalista, á mestu líkurnar þessa stundina, 77 prósent. Einar Þorsteinsson, oddviti framsóknarmanna og fyrrverandi borgarstjóri, á nú 74 prósent líkur á kjöri, en Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, sextíu prósent. Töluvert hefur fjarað undan Flokki fólksins í kosningaspánni. Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti hans, er nú með rúmlega fjórðungslíkur á að ná kjöri en hann hefur mælst með um helmingslíkur undanfarið. Ingimar Þór Friðriksson, Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir og Torfi Markússon í framboðinu Góðan daginn. Vísir/Anton Brink Nýja framboðið Góðan daginn er nú í fyrsta skipti í kosningaspánni. Ingimar Þór Friðriksson, oddviti þess, á níu prósent líkur á kjöri. Stóra myndin um meirihlutamyndun að mestu óbreytt Ef gengið er út frá að þeir frambjóðendur sem eiga helmingslíkur eða meira nái kjöri væri enn sem fyrr aðeins einn tveggja flokka meirihluti mögulegur: meirihluti Sjálfstæðisflokk og Samfylkingar. Eini þriggja flokka meirihlutinn í kortunum er áfram samstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks. Þeir hefðu saman tólf borgarfulltrúa, minnsta mögulega meirihluta. Með fylgistapi sínu þarf Samfylkingin að minnsta kosti þrjá samstarfsflokka til þess að mynda meirihluta. Auk Vinstrisins og Viðreisnar þyrfti Samfylkingin að fá annað hvort Pírata, Sósíalistaflokkinn eða Framsóknarflokkinn í lið með sér. Einar Þorsteinsson hefur þegar útilokað samstarf við Samfylkinguna. Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Maskínu sem var gerð 24.apríl-6. maí hefur 55 prósent vægi í nýjustu uppfærslu spárinnar. Könnun Gallup frá 16.-29. apríl hefur 45 prósent vægi. Kosningaspá Vísis Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Sjá meira
Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Maskínu sem var gerð 24.apríl-6. maí hefur 55 prósent vægi í nýjustu uppfærslu spárinnar. Könnun Gallup frá 16.-29. apríl hefur 45 prósent vægi.
Kosningaspá Vísis Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Sjá meira