Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Árni Sæberg skrifar 6. maí 2026 14:03 Ráðhúsið í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Borgarráð gerir alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að bjóða einungis upp á einn stað fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Aðgengi sé þannig skert verulega á tímum þar sem kjörsókn hafi dregist saman. Borgarbúum stendur aðeins til boða að kjósa í Kópavogi, líkt og öðrum íbúum höfuðborgarsvæðisins.
Í tilkynningu þess efnis frá Reykjavíkurborg segir að á síðasta fundi borgarráðs, sem fram fór fimmtudaginn 30. apríl, hafi verið lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar varðandi tilkynningu sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar við sveitarstjórnarkosningarnar, sem fram fara 16. maí næstkomandi. Umfjöllunarefnið sé það fyrirkomulag að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar, sem hófst 17. apríl, fari eingöngu fram í húsnæði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðasmára 1 í Kópavogi. „Við síðustu sveitarstjórnarkosningar hefur verið lögð áhersla á að kjósendur í Reykjavík geti greitt atkvæði utan kjörfundar í sveitarfélaginu sjálfu en nú verður það ekki í boði,“ hafi sagt í bréfi skrifstofu borgarstjórnar. Hvetja sýslumann til að endurskoða málið Borgarráð ásamt áheyrnarfulltrúum hafi því lagt fram bókun þar sem fram komi að með því að staðsetja atkvæðagreiðsluna einungis á skrifstofu sýslumanns í Kópavogi sé aðgengi kjósenda í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum að atkvæðagreiðslunni skert verulega. „Bætt aðgengi kjósenda hvetur til aukinnar kosningaþátttöku en minnt er á að kjörsókn í sveitarstjórnarkosningum hefur dregist saman síðustu ár. Borgarráð hvetur sýslumann til að endurskoða þessa ákvörðun með hagsmuni kjósenda að leiðarljósi og tryggja fleiri kjörstaði í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu nú á lokasprettinum fyrir kjördag,“ segi í bókuninni.
Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stjórnsýsla Kópavogur Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira