Popúlískar staðreyndir eða hvað! Einar Gísli Gunnarsson skrifar 4. maí 2026 11:16 Skipta staðreyndir máli í stjórnmálaumræðu eða eru þær aukaatriði? Hversu mikilvægt er hvaðan staðreyndir koma? Í þessari grein verða reifaðar hugmyndir um tengsl popúlisma og post-factual politics. Samkvæmt Ian MacMullen eru til nokkrar tegundir post-factual politics sem varpa ljósi á hvað fólk telur vera áreiðanlegar staðreyndir eða ekki. Hvað er popúlismi? Samkvæmt fræðimönnum eins og Cas Mudde er popúlismi svokölluð „þunnkjarna hugmyndafræði“ (e. thin-centred ideology), sem þýðir að hann getur tengst öðrum hugmyndafræðum. Þetta sést meðal annars í því að margir popúlískir stjórnmálamenn í Evrópu starfa innan ramma frjálslynds lýðræðis sem andstæðingar þess. Mudde skilgreinir popúlisma sem átök milli tveggja andstæðra hópa: spilltrar elítu og hins „hreina“ almennings, þar sem stjórnmál ættu að endurspegla vilja fólksins. Ewen Speed og Russell Mannion telja að uppgangur popúlisma stafi af auknum efnahagslegum ójöfnuði og félagslegri útilokun. Með nýfrjálshyggjulegri efnahagsstefnu, hnattrænu flæði vinnuafls og tækniframförum hefur orðið samfélagsbreyting sem skapar gremju hjá þeim sem hafa orðið útundan. Aðrir, eins og Ronald Inglehart og Pippa Norris, halda því hins vegar fram að popúlismi feli í sér áskorun við valdakerfið og hina spilltu elítu og að uppgangurinn skýrist af svokölluðu menningarlegu bakslagi (e. cultural backlash). Sú breyting felur í sér færslu frá gildum kalda stríðsins yfir í fjölmenningarlega og hnattvædda heimsmynd. Frá miðri tuttugustu öld var hefðbundin samfélagssýn byggð á fjölskyldu, trú og þjóð, en í dag er þessi sýn í minnihluta í mörgum ríkum löndum. Breytingin frá efnislegum gildum hefur skapað hóp fólks sem telur sig vera hinn „þögla meirihluta“ og ber gremju til stjórnmálaelítunnar sem hefur vanrækt hann. Einn af lykilþáttum popúlisma er sú hugmynd að vilji meirihlutans eigi að vera drifkraftur stjórnmála. Afstaða hins þögla meirihluta er talin vega þyngra en lögmætar upplýsingalindir eins og meginstraumsmiðlar, stjórnmálamenn eða jafnvel vísindamenn. Því er popúlismi nátengdur post-factual politics, þar sem popúlistar telja eigin reynslu oft mikilvægari en staðfestar staðreyndir. Hvað er post-factual politics? Ian MacMullen hefur sett fram nokkra flokka post-factual politics sem eru áhugaverðir: Í fyrsta lagi er unconscious post-factualism, þar sem borgarar hunsa upplýsingar frá þekktum fréttamiðlum ef þær stangast á við eigin skoðanir eða reynslu. Í öðru lagi er motivational post-factualism, sem snýst um að einstaklingar aðhyllist fullyrðingar sem styrkja sjálfsmynd þeirra eða tilfinningu fyrir því að tilheyra ákveðnum hópi. Í þriðja lagi er epistemic post-factualism, sem byggist á efahyggju um hver geti miðlað sannleikanum; sumir telja að allir aðrir séu hlutdrægir og því ekki treystandi. Hvernig tengjast popúlismi og post-factual politics? Mikko Ylä-Anttila telur að tengslin liggi í svokallaðri gagnþekkingu (e. counter-knowledge). Hann heldur því fram að popúlistar noti hugtakið „heilbrigð skynsemi“ fremur en sérfræðiþekkingu og skapi þannig gagnþekkingu. Þar er lögð til önnur pólitísk þekkingarheimild í stað hefðbundinna upplýsingagjafa eins og vísindamanna eða fjölmiðla. Þessi nálgun leggur áherslu á daglega reynslu almennings, þar sem hún er talin mikilvægari en þekking frá viðurkenndum miðlum eða sérfræðingum. Eitt af megineinkennum popúlisma er að ögra spilltri elítu, og gagnþekking beinist einmitt að því. Tengslin felast því í því að popúlistar eru líklegri til að treysta öðrum leiðum til upplýsingamiðlunar sem samræmast eigin reynslu og þar með ögra elítunni. Hins vegar telja margir fræðimenn að umdeildustu málefni stjórnmálanna séu menningarlegs eðlis, þar sem þættir eins og innflytjendamál, landamæraeftirlit og áhrif alþjóðlegrar samvinnu á fullveldi skipta miklu máli fyrir ákveðna hópa borgara. Þessi mál geta skapað gremju gagnvart stjórnmálaelítunni, sem popúlistar telja spillta þar sem hún sé tilbúin að forgangsraða hagsmunum útlendinga fram yfir hagsmuni eigin borgara. Menningarlegt bakslag skapar þannig frjósaman jarðveg fyrir post-factual politics. Til dæmis hafa hreyfingar á borð við samtökin Orkan okkar sýnt andstöðu við hnattrænar frjálslyndar gildisbreytingar og þannig mótað eigin „staðreyndaumhverfi“ með tilheyrandi upplýsingaóreiðu. Popúlismi og post-factual politicseru því tengd hugtök sem mikilvægt er að hafa í huga þegar staðreyndir eru virtar að vettugi. En hvað finnst þér? Hvernig metur þú staðreyndir? Höfundur er alþjóðastjórnmála- og stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar