Handbolti

Þrettán frá Gidsel en Bjarki og fé­lagar fögnuðu

Sindri Sverrisson skrifar
Bjarki Már Elísson fagnaði sætum sigri í kvöld.
Bjarki Már Elísson fagnaði sætum sigri í kvöld. EPA/Johan Nilsson

Stórleikur besta handboltamanns heims, Mathias Gidsel, dugði Füchse Berlín ekki til að vinna Veszprém í Ungverjalandi í dag, í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta.

Veszprém vann þýsku meistarana með eins marks mun, 35-34, og fer því með naumt forskot til Berlínar í næstu viku þegar seinni leikur liðanna fer fram. Sigurliðið í einvíginu kemst í fjögurra liða úrslitahelgina í Köln.

Bjarki Már Elísson var á leikskýrslu hjá Veszprém en ekki á meðal markaskorara að þessu sinni. Þeir Ivan Martinovic og Hugo Descat enduðu markahæstir hjá heimamönnum með átta mörk hvor. Maður leiksins var hins vegar Gidsel sem skoraði heil 13 mörk úr aðeins 17 tilraunum í leiknum.

Berlínarrefirnir voru lengst af yfir í leiknum og komust mest fimm mörkum yfir um miðjan seinni hálfleik, 26-21. Veszprém náði hins vegar að jafna í 28-28 og komst svo tveimur mörkum yfir þegar skammt var eftir, 35-33, en lokamarkið var gestanna sem þar með eru í nokkuð góðri stöðu fyrir heimaleik sinn.


Tengdar fréttir

Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar

Magdeburg tókst stórt skref í átt að fjögurra liða úrslitahelginni í Köln þegar liðið vann Pick Szeged í Íslendingaslag í Ungverjalandi í kvöld, 35-28, í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×