Baldur til Eyja Agnar Már Másson skrifar 29. apríl 2026 22:25 Baldur siglir til Eyja. Vegagerðin Ferjan Baldur mun sigla til og frá Vestmannaeyjum tímabundið vegna slæms ástands í Landeyjahöfn. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður. Gert er ráð fyrir fyrstu siglingunni til Eyja á föstudag en ferðaáætlun hefur ekki verið birt.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að samkomulag hafi náðst um að Breiðafjarðarferjan Baldur færi til Vestmannaeyja og myndi sigla milli lands og Eyja „meðan ástandið í Landeyjahöfn varir.“ Nokkuð hefur verið fjallað um ástand samgöngumála á svæðinu en ferjan Herjólfur hefur glímt við bilun og á sama tíma þurft að fara lengri leið til Þorlákshafnar vegna slæms ástands í Landeyjahöfn. Vegagerðin segir að reiknað sé með að Baldur hefji siglingar á föstudaginn en nokkurn tíma taki fyrir skipið að sigla til Vestmannaeyja. Á meðan falli ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður. Baldur muni leggja af stað á fimmtudagsmorgun. Verið sé að setja saman siglingaáætlun fyrir viðbótarsiglingarnar en gert sé ráð fyrir að fyrsta ferð geti orðið á föstudagsmorgun. Nánari upplýsingar um siglingaáætlun verða gefnar út af Herjólfi ohf. um leið og hún liggur fyrir, segir í tilkynningunni. „Ekki er útlit fyrir vegna veðurs og sjólags að hægt verði að hefja dýpkun fyrr en á föstudag. Horfurnar til dýpkunar eru ágætar næstu daga á eftir.“ Herjólfur var sex klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja á dögunum vegna ólgusjós og vélarbilunar. Ferjuleiðir ehf. hafa rekið ferjuna Baldur frá því í júní 2025.
Vestmannaeyjar Ferjan Baldur Landeyjahöfn Samgöngur Rangárþing eystra Byggðamál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira