Hvað veist þú? Hugsum áður en við sendum Björk Jónsdóttir skrifar 29. apríl 2026 14:47 Ástæða þess að ég sest niður og skrifa þessa grein er að mér blöskrar svo oft það sem fólk skrifar á samfélagsmiðla það er engin virðing borin fyrir manneskjunni og engin samkennd. Titillinn “Hvað veist þú?” er tilvísun í það að þegar þú sest niður og ritar um einhverja frétt ,til dæmis af fólki, þá veistu sjaldnast hvað þessi manneskja er að burðast með í sálinni. Það er þannig að öll erum við að burðast með eitthvað frá fyrri tíð eða nútíð sem getur haft afdrifarík áhrif á líf okkar. Við erum öll alls konar og lífið hefur farið alls konar höndum um okkur bæði góðum og miður góðum. Það vill þannig til að ég þekki bæði börn og fullorðna sem hafa átt alls konar æsku og lífið ekki alltaf verið gott, en þessir einstaklingar geta með skilningi og stuðningi átt ásættanlegt líf. Oft eru birtar fréttir af einstaklingum sem hafa brotið af sér eða misstigið sig í lifnu og þá stendur ekki á skoðunum netverja sem láta allt flakka og mér dettur ekki í hug að skrifa hér. Skrif þeirra bera ekki vott um samkennd eða virðingu fyrir einstaklingum heldur mikila neikvæðni sem birtist í ljótum orðum og skoðunum. Því spyr ég, hvað veist þú um einstaklinginn? Veist þú hvernig lífsgangan hefur verið.? Það er ekki okkar að dæma einstaklinga. Orð meiða. Þú sem sest niður og skrifar níð, og jafnvel óskir um að viðkomandi hverfi úr þessu lifi, hefur þú leitt hugann að þvi ef þetta væri einhver þér tengdur eða jafnvel þú sjálf/-ur sem læsir þessi orð, slík orð meiða. Gætir þú staðið frammi fyrir viðkomandi og sagt það sem þú skrifar? Hugleiddu það. Við verðum alltaf að hafa í huga að öll börn fæðast í þennan heim óafvitandi hvað bíður þeirra og fæðing þeirra vekur upp mestu gleði og hamingju. Börn velja ekki þær aðstæður sem þau fæðast í og öll viljum við börnum okkar það besta. Lífið getur hins vegar komið að fullum þunga, oft þrungið erfiðleikum sem getur verið að ráða við nema með utnaaðkomandi aðstoð. Sú aðstoð hefur því miður ekki alltaf verið til staðar þegar þörf er á. Áföll eru alls konar og misjafnt hvernig við tökumst á við þau eins og annað í lífinu. En það hjálpar engum sem er að takast á við lífið sitt að fá fúkyrði og virðingarleysi. Orð meiða. Berum virðingu fyrir einstaklingum, við vitum ekki hvað hver og einn er að ganga í gegnum. Dæmum ekki, styðjum frekar til hvatningar og uppbyggingar. Einu sinni var sagt: Hugsum áður en við hendum. Ég segi: Hugsum áður en við sendum. Orð meiða. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri Brúarskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar