Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Valur Páll Eiríksson skrifar 28. apríl 2026 09:02 Til stendur að breyta reglum um gul spjöld á HM í sumar. Catherine Ivill - AMA/Getty Images Til stendur að breyta reglum um gul spjöld og leikbönn á HM karla í fótbolta vegna stækkunar mótsins.
Tillagan liggur fyrir stjórn FIFA sem fundar í Vancouver í Kanada í dag. HM í sumar í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó er það stærsta í sögunni en liðum hefur verið fjölgað úr 32 í 48. Því fylgir að þátttökulið sem fara alla leið spili fleiri leiki en ella. 32-liða úrslit bætast við og því einn leikur aukalega sem bætist við. Samhliða því fjölgar leikjum liða á mótinu og meiri hætta á því að leikmenn fari í leikbann vegna tveggja gulra spjalda sem þeir safni upp yfir mótið. Sú regla hefur verið á um árabil. Tillaga liggur fyrir stjórninni þess efnis að öll gul spjöld verði þurrkuð út eftir riðlakeppni mótsins og einnig eftir átta liða úrslit. Yrði reglunum ekki breytt gæti leikmaður fengið eins leiks bann fengi hann tvö gul spjöld yfir þá fimm leiki sem lið spila á leið sinni í átta liða úrslit. Með breytingunni þarf leikmaður að fá gult spjald í tveimur af þremur leikjum í riðlakeppninni til að fara í bann, eða í tveimur af þremur leikjunum í 32-, 16- og átta liða úrslitum. Reglunum er því ætlað að sporna gegn leikbönnum leikmanna á stærsta sviðinu í sumar. Fastlega er gert ráð fyrir því að reglubreytingin verði samþykkt á fundi stjórnar FIFA vestanhafs í dag.
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Fleiri fréttir Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Sjá meira