Amma mætti á þing kennara Meyvant Þórólfsson skrifar 27. apríl 2026 07:51 Íslenska skólakerfið var á ákjósanlegum stað um aldamótin síðustu. Árið 1999 tóku gildi inntaksmiðaðar aðalnámskrár með skýrum hæfniviðmiðum. Hlutverk samræmdra prófa var eflt til muna og þau hugsuð sem liður í heildstæðu námsmati er hafði bæði leiðsagnargildi og forspárgildi öllum nemendum til hagsbóta. Amma kom á dekk Við setningu fulltrúaþings Kennarasambands Íslands (KÍ) 15. apríl síðastliðinn steig í pontu fimmti pólitískt valdi fulltrúinn í embætti menntamálaráðherra á fimm árum og sá þriðji úr Flokki fólksins á einu ári, reyndar sjálfvalinn í þetta sinn. Þegar hún tók við keflinu í ársbyrjun komst hún svo að orði að börnunum okkar liði illa og hér væri amma komin upp á dekk, sem ætlaði „svo sannarlega að ræsa vélarnar og koma skipinu okkar í land“. Þar gekk téðri ömmu eflaust gott eitt til, rétt eins og þegar hún kynnti skoðanir sínar á fulltrúaþingi kennara um námsmat, skóla án aðgreiningar og fleira. Orðræða byggð á virðingu Kjánahrollur hefur eflaust farið um einhverja við að sjá viðbrögð þingfulltrúanna undir ræðu ráðherra. Undrunarsvip mátti lesa úr stöku andlitum, sumir flissuðu eða hristu höfuðið en aðrir gengu á dyr. Í sjónvarpsfréttum brá fyrir prjónandi þingfulltrúum, sem virtust veltast um af hlátri yfir orðum ráðherra. Fréttamanni láðist þó að geta þess hvað þótti svo fyndið. Í setningarræðu áréttaði formaður Kennarasambandsins að orðræðan um skólakerfið þyrfti að byggjast á virðingu fyrir þeim verkefnum, sem þar færu fram. Hugsanlega hefði hann mátt beina orðum sínum af meiri festu til kollega sinna og biðja þá um að sýna bæði sjálfum sér og starfi sínu meiri virðingu en raun bar vitni. Ekki síst í ljósi þess að samkvæmt alþjóðlegri rannsókn OECD, TALIS 2024, töldu aðeins 19% íslenskra kennara samfélagið bera virðingu fyrir starfi þeirra á meðan um 50% finnskra kennara sögðu það sama um sitt starf og 70% kennara í Singapúr. Ábyrgð fulltrúa á þingi KÍ Framangreind skoðun undirritaðs gagnvart viðbrögðum þingfulltrúa var hugsuð á jákvæðum nótum, alls ekki til að lítilsvirða eða draga dár. Sem fyrrum þátttakandi á slíkum þingum KÍ og í skólamálaráði vill undirritaður minna á að við, sem þar höfum setið, völdumst sérstaklega til að annast mikilvæg verkefni fyrir hönd stéttar, sem á skilið meiri virðingu en fliss og fagurgala. Fulltrúaþingið fer með æðsta vald í málum KÍ, mótar stefnu og lög sambandsins og afgreiðir ýmis önnur mikilvæg mál þegar það kemur saman á fjögurra ára fresti. Þess vegna er brýnt að hinir útvöldu fulltrúar gæti að virðingu sinni og starfsfélaga sem stétt háskólamenntaðra fagmanna; þeir „presenteri“ starfið þar af leiðandi sem „profession“ en ekki eins og hvert annað „job“ svo vitnað sé í orð Wolfgangs heitins Edelstein frá síðustu öld, þegar kennaramenntun færðist upp á háskólastig. Á þinginu varð forystu KÍ reyndar fótaskortur á tungunni þegar formaðurinn tók upp á því að gagnrýna menntamálaráðherra og ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki borið skoðanir sínar undir hana. Fyrrverandi menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, brást þannig við þessu í blogg-skrifum: „Vilji forystumenn kennara að fluttar séu ritskoðaðar ráðherraræður á fundum þeirra er skörin farin að færast upp í bekkinn. Hvar á ráðherra frekar að lýsa skoðun sinni en fyrir framan forystumenn kennara?“ Slík orðræða þarf vissulega að byggja á virðingu allra hlutaðeigandi aðila. Meðal annarra orða: Kjósum skilvirka skólastefnu í komandi sveitarstjórnarkosningum eins og þá sem ríkti hér um aldamótin og gerum skýrar hæfnikröfur til allra sem þar starfa; það er vís leið til að tryggja virðingu kennarastéttarinnar. Stöndum á eigin fótum í skólamálum sem öðrum málum andspænis umheiminum, sér í lagi Brussel: Segjum nei við ESB-viðræðum; það er vís leið til að tryggja virðingu íslensks skólakerfis og þeirra sem þar starfa. Brjótum til mergjar hugmyndir um svonefnda „inngildingu“ og skerpum stefnuna í innflytjendamálum skólakerfinu til hagsbóta; það er vís leið til að tryggja virðingu íslensks skólakerfis og þeirra sem þar starfa, sér í lagi kennarastéttarinnar. Höfundur er háskólakennari á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar