Schengen - hvað færir það okkur? Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar 27. apríl 2026 07:10 Aðild að Schengen Area er samningsbundin og því afturkræf. Útganga felur ekki í sér grundvallarhindranir. Útganga krefst skipulags og getur tekið einhvern tíma, en er í eðli sínu framkvæmanleg og æskileg. Endurupptaka landamæraeftirlits er eitthvað sem við kunnum. Eftirlit á flugvöllum og höfnum, skráning komu farþega og grunnrýni á ferðaskjöl eru staðlaðar aðgerðir. Með því fæst aftur bein stjórn á því hverjir koma inn í landið. Slík stjórn getur gaukið vernd og stuðlað að bættum lífsgæðum og lífskjörum. Fyrir lítið samfélag skiptir miklu máli að geta stýrt aðgengi að búsetu, vinnumarkaði og innviðum í samræmi við eigin aðstæður. Reynsla af ferðamönnum sýnir að landamæraferli er ekki raunveruleg hindrun. Bandaríkjamenn fara í gegnum formlegt Schengen eftirlit til að komast til Íslands, en það dregur ekki úr komu þeirra. Þeir eru áfram verðmætustu gesta landsins. Þetta bendir til að eftirlit hindri ekki ferðalög né eftirspurn. Engin nauðsyn er á að torvelda komu Evrópubúa þrátt fyrir að við yfirgefum Schengen. Hægt er að halda aðgengi greiðu fyrir skammtímadvalir með einföldum reglum, án þess að afsala sér stjórn á náttúrulegum landamærum. Lykilatriði í augnablikinu er svokallað „asylum shopping“. Opnun innri landamæri innan Schengen gera fólki mögulegt að færa sig milli ríkja og velja sér áfangastað. Fyrir lítið samfélag getur slíkt mynstur skapað óhóflegan þrýsting á húsnæði, þjónustu og innviði á skömmum tíma. Slíkur þrýstingur er ekki sjálfbær og ekki ásættanlegur til lengri tíma. Með eigin landamærum er unnt að takmarka slíka þróun og taka ákvarðanir um móttöku á eigin forsendum. Það felur í sér getu til að hafna komu þegar skilyrði eru ekki uppfyllt og, ef nauðsyn krefur, snúa fólki við við komu. Rök um að samstarf í löggæslu og upplýsingaskiptum krefjist opins landamærakerfis eru ekki byggð á skynsemi. Slíkt samstarf byggist á gagnkvæmni og er hægt að útfæra með samningum án fullrar aðildar að Schengen. Niðurstaðan er skýr: útganga er raunhæf, kostnaður við landamæraeftirlit er hóflegur, og ávinningurinn stórkostlegur , m.v. umræðuna, yfirkeyrðir innviðir, fleiri glæpasamtök, skipulagða aftökur. og misþyrmingar af verstu sort. Margt fleira er í hættu svo sem menning og tungumál sem gerir okkur að þjóð, felst í aukinni stjórn. Það væri hægt að telja til fleiri mælanlega þætti sem skipta okkur mál en möguleikum til að vernda lífsgæði og lífskjör samfélagsins til lengri tíma er afar mikilvægur þáttur. Það sem er meira huglægt og gerir okkur að þjóð, svo sem menning og ekki síst tungumálið, er mér og mörgum öðrum mjög mikilvægt og segja má réttur okkar þannig þenkjandi. Þeir sem krefjast og óska sér einskis frekar en fjölmenningar, geta fengið hana út um allt og eru að vaða yfir okkur hin. Höfundur er hagfræðingur og líffræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar