„Við erum bara svo miklir hundar“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 25. apríl 2026 23:43 Viktor í leiknum í kvöld. Vísir/Ernir Flautukarfa skildi liðin að þegar Stjarnan sigraði Tindastól með tveimur stigum í framlengdum leik. Tindastóll leiddi með nítján stigum í hálfleik en Stjarnan snéri leiknum sér í vil með ótrúlegum hætti. Viktor Jónas Lúðvíksson hefur komið sterkur inn í lið Stjörnunnar í kjölfar meiðsla lykilleikmanna og lét svo sannarlega til sín taka í kvöld. „
Við erum bara svo miklir hundar. Baldur teiknaði þetta bara upp í hálfleik og sagði okkur hvað þyrfti að gera og við bara náðum okkur á strik eftir það,“ sagði Viktor, eftir leik í viðtali við Sýn Sport. „Pablo nær lélegu skoti og þú einhvernveginn rífur þetta niður og treður,“ segir Andri Már Eggertsson í viðtali við Viktor eftir leik. Viktor vildi þá meina að þetta hafi alla tíð verið sending. En hér að neðan má sjá troðsluna. „Þetta var ekki skot hjá Pablo þetta var sending. Við vorum búnir að plana þetta, þú sérð hvernig hann leggur þetta beint upp fyrir mig.“ Viktor hefur komið vel inn í lið Stjörnunar í kjölfar meiðsla lykilleikmanna en hann er uppalinn í Stjörnunni. Aðspurður hvernig það var að upplifa það að stúkan tryllist í kjölfar troðslunnar. „Þetta er heimavöllurinn minn og ég þarf að skila mínu. Þetta er bara geggjað, þetta eru allt vinir mínir og félagar og þetta er bara draumur að rætast.“ Strákarnir í Bónus Körfuboltakvöldi ræddu þá aðeins um Viktor og hvernig hann hefur komið inn í lið Stjörnunar. „Ótrúlega gaman að sjá hann stíga upp í þetta hlutverk. Ég get sagt frá því að mánaðarmótin janúar febrúar, tveimur tímum fyrir gluggalok var ég með hann í símanum að reyna fá hann í Njarðvík útaf því að Dominykas Milka var meiddur. Hann var bara nokkuð nálægt því í alvöru, hann þurfti að hringja í Baldur tvisvar en á endanum þá ákvað hann að vera hér,“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur. „Hvernig líður þér með það að þú hefðir getað mögulega eyðilagt þetta fyrir honum“, svaraði þá Jón Halldór Eðvaldsson. „Hann væri á Tene núna ef hann hefði farið í Njarðvík,“ bætti Stefán Árni Pálsson þá við. Njarðvík er auðvitað komnir í sumarfrí og því ljóst að hlutverkið sem Viktor er í núna er heldur meira spennandi og líklegast rétt ákvörðun hjá Viktori að vera um kyrrt.
Bónus-deild karla Stjarnan Mest lesið Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Sjá meira