Íslenski boltinn

HK byrjar á sigri

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik HK í lengjudeildinni á síðasta tímabili
Frá leik HK í lengjudeildinni á síðasta tímabili

HK byrjar tímabilið í Lengjudeild karla í fótbolta á 4-1 sigri gegn nýliðum Gróttu. Völsungur náði þá jafntefli á heimavelli gegn Leikni eftir erfitt undirbúningstímabil.

Grótta komst yfir í leik dagsins gegn HK í kórnum í dag með marki frá Jóhanni Ara Bragasyni. 

Fjögur mörk frá HK í röð Tomi Þorvarsson, Karl Ágúst Karlsson, Dominik Radic og Jóhann Þór Arnarsson skoruðu mörk liðsins og  tryggðu HK 4-1 sigur. 

Á Húsavík tók Völsungur á móti Leikni Reykjavík. Það hefur mikið gengið á hjá Völsungi í aðdraganda móts og margir á því að liðið muni falla beint niður í 2.deild en Húsvíkingar náðu þó að landa jafntefli í dag eftir að hafa lent undir snemma leiks.

Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði mark Leiknis en Tómas Bjarni Baldursson jafnaði metin fyrir Völsung þegar um fimm mínútur eftir lifðu af venjulegum leiktíma. 

Upplýsingar um markaskorara fengnar af fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×