Ranieri tapaði rifrildinu við þjálfarann í Róm Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. apríl 2026 12:32 Claudio Ranieri hafnaði þjálfarastarfi hjá ítalska landsliðinu fyrir ráðgjafastöðuna hjá Róm. Getty Claudio Ranieri hefur verið sagt upp störfum hjá ítalska knattspyrnufélaginu Roma, eftir opinbert rifrildi við þjálfarann Gian Piero Gasperini síðustu vikur.
Ranieri er mikils metinn hjá Roma og tók í þriðja sinn við þjálfarastarfinu hjá félaginu árið 2024. Það var þó bara tímabundið, hinn 74 ára gamli Ranieri færði sig svo yfir í ráðgjafastöðu og sá meðal annars um að ráða Gasperini til starfa árið 2025. Þeir hafa hins vegar alls ekki náð vel saman og síðustu vikur hefur það komið greinilega í ljós. Gian Piero Gasperini hélt sínu starfi og stóð uppi sem sigurvegari rifrildisins. Fabio Rossi/AS Roma via Getty Images Gasperini hefur opinberlega gagnrýnt kaupstefnu félagsins í leikmannamálum. Ranieri sagði það raus vera algjört rugl því Gasperini fékk sjálfur að segja sitt álit á leikmönnum sem voru keyptir. „Við völdum hann í þjálfarastarfið út af því sem hann gerði hjá Atalanta. Þar byrjaði hann með krakka en kom þeim á stóra sviðið. Við fengum krakka, en ég segi „við fengum“ af því að við völdum þá saman. Gasperini þar með talinn. Við fengum engan leikmann sem hann vissi ekki af eða samþykkti ekki,“ sagði Ranieri þann 10. apríl síðastliðinn. Eigendur Roma, Friedkin fjölskyldan, reyndu að standa af sér storminn síðustu tvær vikur með því að segjast ekki taka afstöðu og styðja bæði Gasperini og Ranieri til góðra verka. Samkvæmt La Gazzetta dello Sport sagði Gasperini hins vegar við fjölskylduna að hún þyrfti að velja. Annað hvort yrði hann áfram sem þjálfari eða Ranieri yrði áfram sem ráðgjafi, þeir gætu ekki haldið samstarfinu áfram. Nú hefur Ranieri verið látinn fara og í tilkynningu félagsins segir að „fullt traust sé til þjálfarans Gien Piero Gasperini og þeirrar stefnu sem hann hefur markað.“ The Club's statement on Claudio Ranieri📄 https://t.co/xYzrqClcN9 #ASRoma pic.twitter.com/vctOQXiSK6— AS Roma English (@ASRomaEN) April 24, 2026 Ranieri er því orðinn atvinnulaus en hann á að baki um fjögurra áratuga langan þjálfaraferil. Frægastur er hann fyrir að stýra Leicester að Englandsmeistaratitlinum árið 2016 en Ranieri hefur einnig þjálfað fjölmörg stórlið á Ítalíu og Spáni og orðið bikarmeistari í báðum löndum. Roma er í 6. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar, jafnt Como að stigum en fimm stigum frá Juventus.
Ítalski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira