Lífið samstarf

Nýr rafbíll BMW af­hjúpaður í Hörpu

BL
Þessi bíll er sagður marka upphaf nýrra tíma hjá BMW og var til að mynda valinn bíll ársins og rafbíll ársins 2026 á World Car Awards og bíll ársins hjá Top Gear.
Þessi bíll er sagður marka upphaf nýrra tíma hjá BMW og var til að mynda valinn bíll ársins og rafbíll ársins 2026 á World Car Awards og bíll ársins hjá Top Gear. Einar Ingi Sigmundsson

DJ Dóra Júlía og Daði Freyr héldu uppi stuðinu í Hörpu í fyrrakvöld þar sem BMW svipti hulunni af splunkunýjum rafbíl, iX3.  Ísland er meðal fyrstu markaða í heimi sem fengið hafa nýjan iX3 afhentan en mikil eftirvænting hefur verið eftir honum um allan heim.

Fulltrúar BMW mættu með bílinn til landsins þau Paul de Courtois, framkvæmdastjóri, Cédric Martinez, samskiptastjóri og Heike Sylvia Pfeil, viðskiptastjóri hjá BMW Group í Munchen.

Heike Sylvia Pfeil, Paul de Courtois og Cédric Martinez.Einar Ingi Sigmundsson

Bíll ársins hjá World Car Awards og Top Gear

Þessi bíll er sagður marka upphaf nýrra tíma hjá BMW og var til að mynda valinn bíll ársins og rafbíll ársins 2026 á World Car Awards og bíll ársins hjá Top Gear.  

Hann er með 805 km drægni samkvæmt WLTP og er fyrsti bíllinn sem BMW hannar frá grunni sem rafbíl. 800V rafhlaða, sem gerir hraðhleðslu upp allt að 400 kW mögulega,  frá 10 - 80% á aðeins 21 mínútu.

Í bílnum er ný kynslóð stjórn- og upplýsingakerfis frá BMW, Panoramic iDrive sem sameinar skjái og upplýsingagjöf. Niðurstaðan er betri yfirsýn fyrir ökumann og einfaldari, þægilegri akstursupplifun.

Einar Ingi Sigmundsson

Reynsluakstur í boði í dag á Sævarhöfða

Fyrsta sending er komin til Íslands og verður bíllinn frumsýndur hjá BL á Sævarhöfðanum í dag milli klukkan 12 og 16 og reynsluakstur í boði. Öll eintök í fyrstu sendingu eru forseld en fleiri á leiðinni, svo það er enn möguleiki á að tryggja sér eintak fyrir sumarið.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá viðburðinum í Hörpu.

Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Einar Ingi Sigmundsson
Viktor Freyr
Viktor Freyr
Viktor Freyr
Viktor Freyr
Viktor Freyr
Viktor Freyr
Viktor Freyr





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.