Jafnrétti er ákvörðun Ása Björk Jónsdóttir og Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifa 24. apríl 2026 09:46 Á tíu ára afmælisráðstefnu Kvenna í orkumálum, KÍO, var farið yfir stöðu kvenna innan orku- og veitugeirans og í atvinnulífinu almennt. Bakhjarlar KÍO eru níu stærstu orku- og veitufyrirtæki landsins og konur eru um 30% af starfsfólki þeirra, hlutfall sem hefur lítið breyst undanfarin ár. Aðeins tvö þeirra eru í forsvari kvenna; Sólrúnar Kristjánsdóttur, framkvæmdastýru Veitna, og Rögnu Árnadóttur, forstjóra Landsnets. Á síðustu fjórum árum hefur verið ráðið í sex af þessum stöðum og því skapast raunverulegt tækifæri til að jafna stöðuna enn frekar. Í atvinnulífinu almennt eru konur enn í minnihluta stjórnenda og hlutfall þeirra meðal framkvæmdastjóra aðeins um fjórðungur. Þróunin í átt að jafnari stöðu gengur hægt og miðað við núverandi þróun ná konur ekki 40% hlutdeild fyrr en árið 2065. Rannsóknir sýna skýrt að jafnrétti skilar fyrirtækjum ávinningi. Fyrirtæki með jafnari kynjahlutföll og fjölbreyttari samsetningu stjórnenda eru samkeppnishæfari, sýna betri rekstrarafkomu, eru sterkari í nýsköpun og mælast með meiri starfsánægju. Jafnrétti er því ekki aukaatriði heldur órjúfanlegur hluti af árangursríkum rekstri. Því er eðlilegt að spyrja hvers vegna þróunin er ekki hraðari. Á síðustu árum hafa þó jákvæðar breytingar átt sér stað innan orku- og veitugeirans. Gögn frá bakhjörlum KÍO sýna að konum hefur fjölgað í stjórnunarstöðum á undanförnum árum. Í lok árs 2025 hafði náðst jafnvægi í kynjahlutföllum í framkvæmdastjórnum þegar þær eru skoðaðar saman sem heild, þó að hlutföll séu enn mismunandi milli fyrirtækja. Þetta markar mikilvægt skref í átt að fjölbreyttari sýn við ákvarðanatöku og jöfnum tækifærum. Jákvæð þróun sést einnig meðal millistjórnenda, þar sem dreifing kynja hefur aldrei verið jafnari. Til skemmri tíma liggur stærsta tækifærið í að jafna stöðuna í sérfræðistörfum. Þau eru um helmingur allra starfa í orku- og veitugeiranum, en þar er hlutfall kvenna aðeins um 36%. Þetta eru störf sem krefjast háskólamenntunar eða sérhæfingar og þar er bæði svigrúm og raunhæfur möguleiki til að ná fram breytingum á tiltölulega skömmum tíma, með ákvörðun um markvissar ráðningar og skýrari starfsþróun. Hér er hægt að hafa áhrif strax með næstu ráðningu. Á meðan tækifærin í sérfræðistörfum eru skýr er myndin önnur í iðngreinum, þar sem hlutfall kvenna eykst hægt. Þar þarf víðtækara og samstillt átak til lengri tíma, byggt á samstarfi fyrirtækja, menntakerfis og samfélagsins alls. Að fjölga iðnmenntuðum konum snýst ekki aðeins um námsframboð, heldur einnig um ímynd starfa, sýnilegar fyrirmyndir, menningu og skýr skilaboð um að þessi störf séu bæði aðgengileg og eftirsóknarverð. Ljóst er að jákvæðar breytingar innan orku- og veitugeirans hafa ekki orðið af sjálfu sér, heldur vegna meðvitaðrar stefnu fyrirtækja innan hans um að jafna stöðuna. Það er þó ekki tímabært að láta staðar numið. Orku- og veitugeirinn hefur alla burði til að leiða breytingar og verða fyrirmynd annarra atvinnugreina í jafnréttismálum. Til þess þarf að halda áfram á sömu braut, með skýrari sýn og meiri hraða. Við hvetjum aðrar atvinnugreinar til að líta til þessarar vegferðar, læra af reynslunni og meta hvaða tækifæri liggja hjá þeim sjálfum til að gera betur. Saman getum við hraðað þróuninni og tryggt að við þurfum ekki að bíða eftir jafnrétti til ársins 2065.Því jafnrétti er ákvörðun. Höfundar eru fráfarandi stjórnarkonur KÍO. Ása Björk Jónsdóttir, Leiðtogi stafrænnar þróunar mannauðs, Orkuveita Reykjavíkur. Helga Kristín Jóhannsdóttir, Deildarstjóri Jarðhitagarðs, Orka náttúrunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar