Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar 22. apríl 2026 10:40 Líkt og fram hefur komið í fréttum undanfarið mun Foreldrahús, ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda, leggja niður starfsemi þann 1.maí n.k. að óbreyttu. Ástæðan er skortur á fjármagni. Samkvæmt upplýsingum úr fjölmiðlum er árlegur rekstrarkostnaður um 60 milljónir á ári sem er hjóm eitt í samanburði við mörg þeirra úrræða sem rekin eru hérlendis. Á sama tíma heyrum við endurtekið af börnum og ungmennum með mikinn og flókinn vanda sem kerfið hefur brugðist á allan mögulegan og ómögulegan hátt - sum eru lifandi í dag, önnur ekki. Það hefur margsinnis verið sýnt fram á það að snemmtæk íhlutun er áhrifaríkasta leiðin til að koma styðja við þessa einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Einstaklingur í vanda telst vera barn þar til 18 ára aldri er náð og það veit það hver sá sem starfað hefur í kerfinu sem sinnir börnum að einhverju leyti að barn er ekki eyland. Barni er ekki veitt neins konar meðferð án samráðs og samþykkis foreldra eða forráðamanna og leitast er við að veita allri fjölskyldunni meðferð þegar þess er þörf. Þegar barn glímir við vanda hefur það áhrif á alla fjölskylduna, það vita allir sem eiga börn að ekkert er sárara en að horfa upp á barnið sitt glíma við vanlíðan og upplifa sig fullkomlega vanmáttugan. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða það að hvert foreldri vill gera allt sem í valdi þess stendur til að aðstoða barn sitt, reyna að reisa það við og hjálpa því að líða betur. En það er ekki á færi allra. Foreldrar eru alls konar og sem betur fer hafa fæstir reynslu af því að þurfa að klóra sig í gegnum kerfið til að reyna að fá aðstoð fyrir barnið sitt. En þegar aðstæður eru þannig getur reynst ómetanlegt fyrir fólk að geta leitað eftir aðstoð. Geta fengið ráðgjöf, stuðning eða bara einhvern sem hlustar og skilur án þess að dæma. Því óháð því hvað hver segir þá fylgir því gríðarleg skömm að eiga barn sem passar ekki inn í boxið, barn sem glímir við vanlíðan og/eða flókinn vanda af einhverju tagi. Vissulega eru börn sem þetta á við í mörgum fjölskyldum en fæstir eru að bera það á borð. Það þarf nefnilega mikið hugrekki fyrir foreldri að koma fram og ræða um mál sín og barna sinna á opinberum vettvangi líkt og nokkrar mæður gerðu nýlega eftir að hafa neyðst til að senda börn sín erlendis í meðferð. Við vitum öll að samfélagið er harður dómari. Það er einmitt þess vegna sem það er svo gríðarlega mikilvægt fyrir foreldra að geta fengið ráðgjöf og stuðning hjá fagaðilum - aðilum sem í umræddu úrræði hafa starfað í málaflokknum í áratugi og sinna í dag foreldrum barna allt niður í 12 ára.Það var síðast í dag sem ég rakst á fyrirspurn foreldris í hópi á facebook varðandi mögulega vímuefnanotkun barns - foreldrið vildi ekki koma fram undir nafni (skiljanlega), vissi ekki hvert það ætti að leita eða hvernig það ætti að snúa sér. Í þessu tilfelli hefði stutt símtal við ráðgjafa Foreldrahúss getað svarað þessum spurningum og fleirum til. Við vitum að það eru mörg hundruð foreldrar þarna úti í sömu stöðu. Almennt er það nefnilega þannig að foreldrar fá hvorki ráðgjöf né stuðning fyrr en vandinn er orðinn það mikill að kerfið þarf að grípa inn í. Kostnaðurinn eykst í samræmi við það. Í starfi mínu með einstaklingum sem tilheyra einum jaðarsettasta hópi samfélagsins hef ég kynnst æði mörgum einstaklingum og oft fjölskyldum þeirra. Þótt skjólstæðingar mínir teljist fullorðnir halda þeir áfram að vera börn foreldra sinna. Og þessir foreldrar þurfa stuðning. Þeir leita til okkar sem störfum með (fullorðnu) börnunum þeirra til að fá áheyrn, til að upplifa samhygð, til að lifa af. Því hvað sem öllu líður hætta börnin manns aldrei að vera börnin manns. Það sem stingur einna mest þegar maður vinnur með fólki sem lifir á jaðri samfélagsins er að horfa upp á ungmenni sem eru komin á dimman stað mjög ung að árum. Vandi þeirra hófst ekki þegar þau urðu 18 ára heldur mörgum árum fyrr líkt og komið hefur fram í fjölda sagna á opinberum vettvangi. Þetta eru gjarnan börnin sem féllu á milli kerfa. Þau eru ekki nógu “veik” til að fá aðstoð en of “veik” til að fúnkera í hefðbundnu samfélagi. Það er gjarnan þannig að það hefur stefnt í ákveðna átt í mörg. Á þeim árum, og í þeim aðdraganda er gríðarlega mikilvægt að foreldrar geti fengið stuðning og ráðgjöf. Eins og staðan er í dag er enginn staður hér á landi sem veitir sömu þjónustu og Foreldrahús og því hlýtur maður að spyrja sig hvers vegna þjónustan fær ekki fjármagn. Hvers vegna Flokkur sem stærir sig af baráttu fyrir lítilmagnanum sér ekki sóma sinn í því að styðja við starfsemi sem þessa. Hvers vegna ekkert kemur í staðin. Hvert geta forledrar leitað þegar Forledrahús lokar? Því fjöldi barna með mikinn og flókinn vanda er langt frá því að vera á undanhaldi. Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun