Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar 22. apríl 2026 10:11 „Er ekki málið að doxxa þennan súrefnisþjóf og sjá til þess að hann lifi í stöðugum ótta og muni ganga meðfram veggjum það sem hann á eftir ólifað?“ Á Íslandi þrífst ákveðin ofbeldismenning. Samfélagsmiðlar hafa gert það að verkum að auðveldara en nokkurn tíman áður er fyrir andfélagslega einstaklinga að hópa sig saman og espa upp reiðina og hefnigirnina í hvort öðru þar til upp úr sýður. Einn slíkan hóp er að finna á Facebook undir Orwellíska nafninu Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu, en tilvitnunin í upphafi þessa pistils er sótt þaðan. Á þessum hóp er að finna innlegg eftir innlegg þar sem fólk er tekið fyrir, án þeirra vitneskju, á ýmsum forsendum og grafið er undan þátttöku þess og stöðu í Íslensku samfélagi. Markvisst er unnið að því að skerða atvinnumöguleika þess. Skilaboð eru send til atvinnuveitenda og nástaddra. Dagana og jafnvel vikurnar eftir að aðili hefur verið tekinn fyrir má hann oft á tíðum þola ógnandi skilaboð. Börnum þeirra er gert að skammast sín fyrir foreldri sitt. Fórnarlambið er afmennskað og draumórar um hefniaðgerðir í garð þess viðraðir. Ég vildi óska þess að sem flestir gætu séð örvæntinguna og vonleysið sem þessu fylgir fyrir þá sem í þessu lenda. Því að taka upp hanskan fyrir þetta fólk fylgir oft á tíðum svo átakanleg skilaboð og sárar þakkir að það veldur manni raunverulegu áfalli. Það situr eftir í manni vikum saman. Oft er um að ræða fólk sem hefur engan dóm hlotið. Fólk sem hefur verið ásakað opinberlega um brot sem hefur annað hvort ekki fengið farveg innan réttarkerfisins eða ekki hefur tekist að sýna fram á að hafi átt sér stað. Í slíkum tilfellum, þar sem niðurstaða dómstólsins er að ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi átt sér stað, einkennist orðræðan af reiði í garð dómkerfisins. Reiði yfir því að meintu fórnarlambi skuli ekki einfaldlega trúað. Reiði yfir því að neitun hins ásakaða skuli vega þyngra en upplifun og orð ásakandans. Í þessu felst auðvitað höfnun á grundvallarforsendu hins frjálsa réttarríkis, eða að sönnunarbyrgðin liggi hjá þeim sem ásakar annan aðila um brot en ekki hjá þeim sem sætir ásökunum. Ástæðan fyrir þessari forsendu er í raun einföld, en hún er sú að oft getur verið erfitt að sýna fram á sakleysi. Það er erfitt að sanna að eitthvað hafi ekki átt sér stað. Að eitthvað sé ekki. Þetta er þekkt umræðuefni rökfræðinnar og heimspekinnar almennt. Samhliða þessu er siðferðileg ákvörðun þess eðlis að betra sé að sekur einstaklingur gangi laus en að saklausum einstakling sé refsað. Öllum þeim sem vænt þykja um að búa í frjálsu réttarríki og vilja gera slíkt til frambúðar ber að standa vörð um þessa forsendu og fordæma alla aðför að henni. Hafa verður þó í huga að þeir sem stunda þessa aðför að réttarríkinu gera það eflaust oftast ekki vísvitandi. Það er ekki markmið þeirra að gera samfélagið verra. Þvert á móti telja þau sig eflaust vera að gera samfélagið betra með því að berjast gegn óréttlæti. Þau trúa því að raunverulega hafi verið brotið á manneskju og hún svikin af réttlæti. Oft kann þetta að vera rétt. Það koma upp tilfelli þar sem flestir málsmetandi aðilar mynda sér þá skoðun um einhvern að hann sé sekur um tiltekið brot þó að ekki hafi tekist að sýna fram á sekt hans innan réttarkerfisins. Þó þarf að sleppa tökum á viðkomandi og snúa við honum baki. Þetta er fórnarkostnaður þess að forðast til hins ítrasta að refsa saklausu fólki. Því það er meira óréttlæti sem felst í því að refsa þeim sem á það ekki skilið en að refsa ekki þeim sem á það skilið. „Ef það nægir að ásaka, hvað verður þá um hina saklausu?“ - Julianus, keisari Rómaveldis, fjórða öld e. Kr. Höfundur er tölvunarfræðingur og talsmaður frjálslyndis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörvar Sigurðsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar