Börnin í fyrsta sæti Regína Ásvaldsdóttir skrifar 21. apríl 2026 12:30 Samfylkingin í Reykjavík kynnti helstu stefnumál flokksins fyrir kosningarnar í vor, um síðustu helgi. Við setjum börnin í fyrsta sæti, viljum einfalda ferla og auðvelda fyrirtækjum að eiga samskipti við borgina, standa með samgöngusáttmálanum og efla hverfiskjarna. Reykjavíkurborg hefur verið í forystu um árabil þegar kemur að uppbyggingu leikskólakerfisins. Þegar R listinn komst til valda þá var full vistun á dagheimilum eingöngu fyrir einstæðar mæður og námsmenn. Með tilkomu R listans varð bylting í þessum málum og nútímalegir leikskólar byggðir upp um alla borg. Fólksfjölgunin í Reykjavík hefur verið gríðarleg á síðustu árum en íbúum hefur fjölgað um 20 þúsund frá árinu 2015. Það er jafnmikill fjöldi og allir íbúar Garðabæjar. Fókus borgaryfirvalda hefur eðlilega verið á uppbyggingu og skipulagsmál enda ákall um fjölgun íbúða og það hefur aldrei verið byggt eins mikið í Reykjavík. En við þiggjum þjónustu sem einstaklingar, ekki sem meðaltal eða íbúatala. Við teljum að nú sé kominn tími til þess að horfa meira inn á við og setja þjónustu við börn og fjölskyldur í algjöran forgang. Það þýðir að taka aftur forystuna í leikskólamálum, bæta starfaðstæður starfsfólks, meðal annars til að mæta styttingu vinnuvikunnar og setja kraft í endurnýjun skóla og byggingu nýrra. Reykjavíkurlíkanið, þar sem foreldrar skrá vistunartíma, tók gildi 1. apríl síðastliðinn og gefur strax góða raun. Sú leið er frábrugðin Kópavogsmódelinu umrædda þar sem leikskólagjöldin í Reykjavík eru mun lægri fyrir fulla vistun. Þarna getur munað allt að 450.000 krónum á ári fyrir fjölskyldu með tvö leikskólabörn – það munar um minna! Forsætisráðherra kynnti nýlega stefnu flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor undir yfirskriftinni Tökum ábyrgð hvert á öðru með megináherslur á þrjá málaflokka. Tryggja leikskóladvöl fyrir yngstu börnin, hlú að þeim sem byggðu upp landið með aðgerðum í þágu heimaþjónustu og heimahjúkrunar auk fjölgunar hjúkrunarrýma og auðvelda leið einstaklinga og fyrirtækja að uppbygginu og rekstri. Við, frambjóðendur Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum í vor teljum það fagnaðarefni að Samfylkingin ætli að beita sér fyrir því að lögfesta leikskólann sem fyrsta skólastig og viðurkenna þessa mikilvægu þjónustu í lífi barna og fjölskyldna og tryggja sveitarfélögunum tekjustofn til þess að standa undir þeim kostnaði. Í dag eru sveitarfélögin að sinna þessari þjónustu án þess að hún sé lögbundin og án þess að nægilegar tekjur séu til staðar. Þátttaka foreldra í kostnaði hefur farið hríðlækkandi undanfarinn einn og hálfan áratug, úr ca 30 % árið 2010 í 10 % eða minna. Þannig greiða sveitarfélög á bilinu 3-400 þúsund með hverju barni á mánuði, eftir aldri barna. Það að eygja möguleika á að bjóða upp á örugga þjónustu, án þess að skerða vistunartíma eða fara í gífurlegar hækkanir á barnafólk ætti að vera fagnaðarefni. Sveitarfélögin eru vissulega brennd af áralöngu stappi við ríkisvaldið þegar kemur að samningum vegna lögbundinnar þjónustu og það getur markað viðbrögð einhverra á þeim vængnum. Börn og foreldrar eiga þó ekki að gjalda fyrir það og það á að vera okkar verkefni sem erum að bjóða okkur fram í sveitarstjórnum að tryggja gott samráð við ríkisvaldið um réttláta skiptingu. Höfundur skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Regína Ásvaldsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar