Símenntun er nauðsyn – ekki lúxus Fríða Rós Valdimarsdóttir skrifar 21. apríl 2026 09:01 Vinnumarkaðurinn, eins og samfélagið allt, tekur stöðugum breytingum vegna tækniþróunar sem umbreytir daglegu lífi okkar og starfsháttum. Störfum í móttöku, afgreiðslu og almennum skrifstofustörfum fer t.d. fækkandi á meðan fjölga þarf störfum í umönnun á allra næstu árum vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar. Samhliða þessum grundvallarbreytingum eru flest störf að breytast vegna stafrænnar þróunar. Til að mæta þessu þarf að auka færni starfsfólks með öflugu, sveigjanlegu og aðgengilegu kerfi símenntunar. Skýr skilaboð frá alþjóðasamfélaginu Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) skilgreinir símenntun og hæfniþróun sem lykilforsendu þess að hægt sé að viðhalda vinnumarkaði með mannsæmandi störfum og heilbrigðum vinnumarkaði. Í stefnu ILO til ársins 2030 er lögð áhersla á að gott aðgengi að símenntun sé nauðsynlegt til að draga úr ójöfnuði og tryggja stöðugleika á vinnumarkaði. Greiningar Efnahags- og framfarastofnunnar Evrópu (OECD) sýna að stærstu hindranir í þátttöku starfsfólks í símenntun eru skortur á hvatningu atvinnurekenda og stjórnenda, tímaleysi og kostnaður. Þessar hindranir eru meiri fyrir fólk sem starfar í láglaunastörfum og störfum sem krefjast styttri formlegrar menntunar. Rannsóknir hér á landi sýna fram á sömu niðurstöður. Hver er staðan á Íslandi? Í nýrri könnun Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðins, kemur fram að um fjórðungur launafólks innan BSRB og ASÍ telur að störf sín hafi breyst eða muni breytast vegna nýrrar tækni eða loftslagsbreytinga. Athygli vekur að meðal þeirra sem búast við breytingum telur rúmur helmingur að þeim muni fylgja aukið álag og þörf á símenntun. Þegar spurt er út í starfsöryggi, þ.e. hvort fólk telji líkur á að það missi starf sitt vegna tæknibreytinga, kemur í ljós að það eru innflytjendur og fólk í lægst launuðu störfunum sem óttast hvað mest um starfsöryggi sitt. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins telur að 60% launafólks þurfi að sækja sér símenntun á ári hverju til að viðhalda nægilega góðri hæfni á vinnumarkaði. Sambærileg markmið hafa ekki verið sett hér á landi. Þegar litið er til Evrópu í heild er langt í land að þetta markmið náist, þar sem heildarhlutfall þeirra sem sækja sér símenntun er einungis 37%. Hlutfallið lækkar niður í 18% sé litið til þeirra sem hafa stutta skólagöngu að baki. Ef horft er til stöðunnar á Íslandi er hlutfallið enn lægra. Samkvæmt Hagstofu Íslands sækja einungis um 27% vinnandi fólks á aldrinum 25-64 ára sér sí- og endurmenntun árlega og aðeins 15% ef aðeins er litið til þeirra sem hafa stutta skólagöngu. Hættan sem fylgir örri tækniþróun Samhliða hröðum tæknibreytingum sjáum við einnig að grafið er undan réttindum launafólks. Brotakenndum ráðningarsamböndum fjölgar, sem og verktakavinnu og gerviverktöku, á kjörum sem eru undir kjarasamningsbundnum lágmarkskjörum. Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hefur bent á að víða sé verið að veikja hefðbundin réttindi starfsfólks, draga úr fyrirsjáanleika og færa áhættu frá atvinnurekanda yfir á launafólk. Slík þróun hefur í för með sér minna atvinnuöryggi og verri kjör. Bestum þátttökuna! Til að tryggja þátttöku í símenntun þarf nám að verða hluti af menningu vinnustaða. Það þurfa að vera til staðar starfsþróunaráætlanir, bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði í heild, í stað þess að sí- og endurmenntun byggist á tilviljunarkenndum ákvörðunum. Alþjóða vinnumálastofnunin telur að til að auka þátttöku enn frekar sé nauðsynlegt að útbúa starfsþróunaráætlanir í samvinnu starfsfólks og stjórnenda, og að slíkt fyrirkomulag stuðli að því að hæfnin nýtist betur — bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði. Stjórnendur gegna lykilhlutverki þegar kemur að símenntun með því að gera ráð fyrir tíma til náms á vinnutíma, sýna frumkvæði, vera hvetjandi og veita starfsfólki stuðning. Regluleg starfsþróunarsamtöl, skýrar og aðgengilegar starfsþróunaráætlanir og markviss eftirfylgni skipta sköpum. Rétt verkfæri fyrir réttláta framtíð Hagsmunir launafólks og launagreiðenda mætast þegar nám og fræðsla eru fléttuð inn í vinnustaðamenninguna. Það er einnig forsenda þess að umbreytingar á vinnumarkaði verði réttlátar — það styrkir stöðu launafólks, eykur jafnrétti og er mótvægi við þau undirboð sem eru að ryðja sér til rúms á íslenskum vinnumarkaði. Spurningin er því ekki hvort við höfum efni á að fjárfesta í símenntun, heldur hvort við höfum efni á að gera það ekki. Höfundur er sérfræðingur í fræðslumálum hjá BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar