Eðli umburðarlyndis hægrimanna Sigurður Örn Stefánsson skrifar 20. apríl 2026 09:16 Þann 15. apríl síðastliðinn ritaði Diljá Mist Einarsdóttir grein á Vísi með titilinn Kærleikur og umburðarlyndi vinstri manna. Í greininni fjallar hún um nýlega skýrslu Fjölmiðlanefndar og Netvís, Lýðræði og skautun – Upplifun fólks af áróðri og viðhorf til mismunandi hópa. Í skýrslunni er meðal annars fjallað um viðhorfskönnun þar sem spurt er hvort svarendum mislíki mjög, ákveðnir hópar í samfélaginu. Svörin eru auk þess greind eftir því hvort svarendur telja sig til hægri eða vinstri í stjórnmálum. Í grein sinni ritar Diljá: ,,Það sem fangaði athygli mína var hins vegar staðfesting á því sem ég þóttist þegar vita. Nefnilega að vinstrimenn eru upp til hópa mun minna umburðarlyndir en hægrimenn. Hafa minna umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra.” Á að virða skoðanir annarra? Til að byrja með er við hæfi að rifja upp það sem Páll Skúlason hafði að segja um hvort við eigum að bera virðingu fyrir skoðunum annarra: ,,Á mannamótum er því oft haldið fram að virða beri skoðanir annarra. Aldrei hef ég samt heyrt nokkurn mann færa rök fyrir þessum boðskap. Vafalaust þykir fólki það óþarft, augljóst sé hvað við er átt og engin þörf á að rökstyðja það: allir hljóti að samsinna þessu. Ég treysti mér ekki til þess. Ég held að það sé ámælisvert að virða skoðanir annarra, ef maður veit að þær eru ekki réttar. Rök mín fyrir þessu eru ekki mjög flókin: skoðanir eru ekki einkamál þeirra sem þær hafa og þess vegna er manneskju ekki sýnd nein óvirðing þó að skoðanir hennar séu ekki virtar. “ Nú veit ég ekki nákvæmlega hvernig spurningarnar í viðhorfskönnuninni voru settar fram og hvaða leiðbeiningar svarendur fengu. Það má þó leiða líkur að því að þegar spurt er um afstöðu gagnvart hópi fólks sem er með nokkuð skýrar og áberandi skoðanir þá getur verið að andúð svarenda beinist gagnvart skoðununum sjálfum en ekki nauðsynlega að persónum hópsins. Eðlismunur á hópum sem vinstra- og hægra fólki mislíkar En hvaða hópar eru þetta sem hægra- og vinstrafólki mislíkar svona? Ef við miðum bara við hópa sem skora hærra en 10% á mislíkunarkvarðanum er áhugavert að sjá að vinstrafólki líkar nær eingöngu illa við hópa sem skilgreinast af skoðunum meðlima á hinum og þessum málefnum. Þar má nefna sem dæmi þjóðernissinna (68% vinstri mislíkar, 13,7% hægri mislíkar) stuðningsfólk Miðflokksins (62,6% vinstri mislíkar, 5,7% hægri mislíkar) og vopnasafnara (39% vinstri mislíkar, 16% hægri mislíkar). Á þessu er ekki nema ein undantekning en 51,1% af vinstrafólki mislíkar milljarðamæringar (samanborið við 5,7% af hægrafólki). Þó svo að varla sé hægt að flokka það að vera milljarðamæringur sem skoðun er ljóst að milljarðamæringar er ekki sá hópur í samfélaginu sem á mest undir högg að sækja. Ef við gerum sömu greiningu á hægrafólki kemur í ljós að þeim mislíkar ekki bara þeir hópar sem skilgreinast af skoðunum meðlima heldur einnig þeir sem skilgreinast af uppruna, aðstæðum og eðli meðlima. Þar má nefna múslíma (38,9% hægri mislíkar, 6,3% vinstri mislíkar), innflytjendur (23,1 % hægri mislíkar, 2,9% vinstri mislíkar), transfólk (17% hægri mislíkar, 0,4% vinstri mislíkar) og bótaþega (12,7% hægri mislíkar, 0% vinstri mislíkar). Það er eðlismunur á því að líka ekki við fólk vegna uppruna þeirra, aðstæðna og eðlis annars vegar og skoðana þeirra hins vegar, sérstaklega þegar þær skoðanir beinast í sumum tilfellum (samkvæmt sömu skýrslu!) gegn minnihlutahópum líkt og múslímum, innflytjendum, transfólki og bótaþegum. Skoðunum má auðveldlega breyta til hins betra og jafnvel vinna sér aftur inn glataða virðingu en það er ekki alltaf auðvelt, og ekki endilega ástæða til, að breyta uppruna sínum, aðstæðum eða eðli. Ef til vill verður vinstrafólk umburðarlyndara gagnvart hópum með tilteknar skoðanir þegar þeir sem hafa þær skoðanir verða umburðarlyndari gagnvart fólki. En þar til það gerist er engin ástæða til að bera virðingu fyrir eða umbera slæmar skoðanir. Höfundur er prófessor í stærðfræði við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar