Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar 18. apríl 2026 06:30 Fyrstu rannsóknir um neikvæð áhrif ilmefna Upp úr 1970 fóru vísindamenn að hafa auknar áhyggjur af notkun þalata í ilmefnum, snyrtivörum, matvælum og öðrum heimilisvörum. Fyrstu rannsóknir á dýrum sýndu að þalöt, sem m.a. má finna í ilmefnum, gætu valdið hormónatruflunum og ófrjósemi. Tæpum 20 árum síðar, eða um 1990, fóru vísindamenn að tengja ilmefnanotkun við neikvæð áhrif á heilsu mannfólks. Enn í dag, rúmum 50 árum eftir að fyrstu rannsóknir sýndu fram á möguleg neikvæð áhrif ilmefna, er meirihluti heimilisvara stútfull af ilmefnum. Ilmefni og þalöt finnast m.a. í flestum þvottaefnum, sjampóum, hárnæringum, sápum, kremum, líkamsolíum, hreinsiefnum, mýkingarefnum, tannkremum, ilmspreyjum, ilmstaukum, ilmstráum, ilmkertum, ilmlömpum, reykelsum og flest öllum snyrtivörum. Hvað eru ilmefni og hver eru áhrif þeirra? Ilmefni eru framleidd manngerð efni, samsett úr fjölmörgum efnum og efnasamböndum. Finna má 30 - 300 efni eða efnasambönd í einu ilmefni, t.d. þalöt, paraben, VOC- efni og PFSAS efni. Rannsóknir sýna að um 30% mannkyns finna fyrir einhvers konar neikvæðum áhrifum ilmefna, og allt að 15% finna fyrir verulegum skerðingum á lífsgæðum og veikindum vegna ilmefnanotkunar í samfélaginu. Um 1-5% hafa svo staðfest ofnæmi fyrir ilmefnum. Rannsóknir sýna að ilmefni og önnur efnasambönd hafa skaðleg áhrif á vistkerfi, lífkerfi og heilbrigði. Þau geta raskað hormónastarfsemi, veikt ónæmiskerfi, skert heilastarfsemi og haft áhrif á taugaþroska. Einkenni geta verið allt frá flensulíkum einkennum, síþreytu og örmögnun, ADHD, einhverfulíkum einkennum og skertri vitrænni hæfni. Nokkrar rannsóknir um ilmefni og áhrif þeirra má nálgast á heimasíðu SUM - samtaka um áhrif umhverfis á heilsu. Börn og ilmefni Ungabörn, börn og ungmenni eru sérstaklega næm fyrir útsetningu ilmefna. Heili þeirra, taugakerfi, hormónakerfi og æxlunarfæri eru enn í mótun og afeitrunarkerfi ekki fullþroskuð. Útsetning fyrir ilmefnum snemma á lífsleiðinni sýnir neikvæð áhrif á heilsu barna og þroska. Ilmefni berast ekki aðeins beint með barnavörum. Þau berast einnig óbeint um heimili, skóla og frístundir. Þar hefur ný tíska ilmstráa og sambærilegra ilmgjafa einnig áhrif. Ilmefnin loða við föt okkar, innanstokksmuni og húsgögn, og hafa neikvæð áhrif á loftgæði og innivist. Ilmefni geta þannig haft áhrif, jafnvel þegar börnin eru ekki í beinni snertingu við þau. Staðan í dag? Síðustu ár hefur fræðsla og umræða um ilmefni aukist. Læknar og heilbrigðisstarfsfólk leggur nú aukna áherslu á mikilvægi ilmefnalauss lífstíls, sérstaklega með börn, ungmenni, gæludýr, eldri borgara, öryrkja eða aðra viðkvæma hópa á heimilinu. Í dag er unnt að velja fjölbreytt úrval af ilmefnalausum vörum, og helstu verslanir á Íslandi bjóða upp á þvottaefni, snyrtivörur, hreinlætisvörur, hreinsivörur og aðrar heimilisvörur án ilmefna. Mikilvægt er að huga að ilmefnalausum lífstíl ekki aðeins fyrir barnið sjálft, heldur einnig fyrir öll sem eru í kringum það. Það besta sem hægt er að gera er að draga úr notkun ilmefna og annarra ilmgjafa. Enn betra væri þó að markaðurinn og stjórnvöld taki mið af rannsóknum, grípi inn í áður en það verður um seinan, og einfaldlega skerði verulega eða banni notkun ilmefna inn í heimilisvörur. Höfundur er í stjórn SUM - Samtaka um áhrif umhverfis á heilsu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar