Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar 17. apríl 2026 15:03 Þegar einstaklingur greinist með alvarleg veikindi snertir það aldrei eingöngu hann einan. Það snertir fjölskyldur, vini, vinnustaði, skóla og heilu bæjarfélögin. Þegar það gerist vitum við oft ekki hvað skal segja eða hvernig við eigum að bregðast við. Í samfélagi þar sem hraði og einstaklingshyggja ráða oft ferðinni er auðvelt að draga sig í hlé þegar erfiðleikar dynja yfir aðra. En reynslan sýnir annað: Flestir vilja taka þátt. Fólk vill hjálpa-oft þarf bara vettvang. Í starfi mínu sem fjáröflunarstjóri hjá Krafti stuðningsfélagi sé ég þá töfra sem geta myndast þegar fólk ákveður að gera eitthvað og nýta vettvang Krafts í stað þess að standa hjá. Fyrirtæki, skólar og hópar hafa samband þegar einhver innan þeirra raða hefur greinst með krabbamein. Þau vilja sýna stuðning í verki en ekki bara með orðum. Í samráði við þau skipuleggjum við viðburð þar sem fólk kemur saman og perlar helstu fjáröflunarvöru félagsins, sem er hið fræga „lífið er núna” armband. Þetta er þó miklu meira en bara fjáröflun. Á viðburðum Krafts skapast einstakt andrúmsloft og það er magnað að fylgjast með. Hópar breytast, fólk sem þekkist lítið vinnur saman af einlægni og hlýju og í sumum tilfellum myndast samhugur sem lifir áfram löngu eftir að viðburði lýkur. Þetta snýst um að taka afstöðu. Við stöndum öll frammi fyrir vali þegar áföll dynja yfir; að líta undan eða stíga fram. Samstaða myndast ekki í tómarúmi. Hún verður til þegar við ákveðum að vera til staðar fyrir hvert annað. Sjálfboðaliðastarfið sem verður til í kringum þessa viðburði er ekki aukaatriði, það er kjarninn. Þar verður samstaða sýnileg. Þar gerist eitthvað sem við tölum kannski of sjaldan um: Þeir sem leggja sitt af mörkum styrkjast sjálfir. Sjálfboðaliðastarf krefst þess að við endurhugsum hlutverk okkar. Að við komum ekki endilega inn sem miðpunktur sögunnar, heldur sem þátttakendur í stærra samhengi. Að við séum tilbúin að hlusta áður en við framkvæmum, og læra jafn mikið og við leggjum af mörkum. Sama á við þegar veittur er fjárhagslegur stuðningur, sem vissulega er ekki á allra færi. Hvert framlag sýnir afstöðu gagnvart því hvaða verkefni við teljum verðug, hvaða nálganir við styðjum og hvaða framtíð við viljum sjá. Að gefa er því ekki aðeins spurning um velvilja, heldur um vald. Þess vegna skiptir máli hvernig við tölum um þessi mál. Ef við höldum áfram að ramma sjálfboðaliðastarf eða fjárhagslegan stuðning inn sem einungis góðverk, missum við af kjarnanum. Þá höldum við uppi hugmyndum um að sumir gefi og aðrir þiggi, í stað þess að horfast í augu við að við erum öll hluti af sama samfélagi og berum öll ábyrgð á því hvernig það þróast. Spurningin er því ekki hvort við getum hjálpað, heldur hvort við séum tilbúin að axla ábyrgð. Þess vegna skiptir máli að bregðast við. Að mæta. Að leggja sitt af mörkum. Höfundur er fjáröflunarstjóri hjá Krafti stuðningsfélagi og myndlistarkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun