Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Sindri Sverrisson skrifar 17. apríl 2026 10:30 Aston Villa sló Bologna út í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gærkvöld. Getty/George Wood Ágætar líkur eru á því að liðið sem endar í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í vor fái sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Öruggt er að fimm efstu fá þar sæti en lið á borð við Brentford, Everton, Brighton og Sunderland eygja nú möguleika á að komast á stærsta svið félagsliðaboltans.
Þetta veltur allt á því að Aston Villa vinni Evrópudeildina og þar eru Villa-menn nú komnir í undanúrslit og mæta öðru ensku liði, Nottingham Forest. Í stuttu máli: Ef Villa vinnur Evrópudeildina og endar í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar þá mun liðið í 6. sæti fá aukasæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Villa er sem stendur í 4. sæti en aðeins þremur stigum á undan Liverpool. Liðið sem vinnur Evrópudeildina fær nefnilega sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Ef að Forest fær það sæti er málið mjög einfalt. Forest, sem er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fær þá viðbótarsæti í Meistaradeildinni og ensku liðin þar verða samtals sex; Forest og fimm efstu í úrvalsdeildinni. Ef að Villa vinnur Evrópudeildina og endar samt líka í hópi fjögurra efstu liða í ensku deildinni (og fær því í raun Meistaradeildarsæti með tvennum hætti) þá fylgir því hins vegar ekki neitt viðbótarsæti fyrir ensku liðin í Meistaradeildinni. Fimm efstu liðin í ensku úrvalsdeildinni færu einfaldlega í Meistaradeildina og „aukasætið“ sem Villa fengi færi til liðs í öðru landi, samkvæmt styrkleikaröðun UEFA. Hversu dýrmætt verður sjötta sæti? Það er aðeins ef að Villa vinnur Evrópudeildina og endar í 5. sæti úrvalsdeildarinnar sem að liðið í 6. sæti fær Meistaradeildarsæti. Um 6. sætið er hörð barátta en Chelsea er þar núna með 48 stig, Brentford og Everton hafa 47, og Brighton og Sunderland 46. Jafnvel Bournemouth (45) og Fulham (44) eru með í þessari baráttu. Þessi lið eru svo að sjálfsögðu hvort sem er í baráttu um Evrópusæti því 7-8 efstu liðin í ensku úrvalsdeildinni komast í einhverja af Evrópukeppnunum þremur á næstu leiktíð. Ef að Villa endar neðar en í 5. sæti og vinnur Evrópudeildina gildir einfaldlega það sama og hjá Forest, að liðið fengi þá aukasæti í Meistaradeildinni og efstu fimm liðin í úrvalsdeildinni færu þangað líka.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Sjá meira