Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar 17. apríl 2026 09:47 Nei Í umræðunni um Evrópusambandið undanfarið hefur verið rætt um þann möguleika hvort Íslendingar þurfi að manna „evrópskan her“ ef við skyldum ganga þangað inn. Fjallað hefur verið um þetta eins og staðreynd, sem vekur skiljanlega upp ótta. En staðreyndin er hins vegar sú að þetta er ekki rétt. Í 42. gr. sáttmála um Evrópusambandið kemur skýrt fram að ESB virðir stjórnskipulega sérstöðu ríkja. Ísland er herlaust land Þar segir líka að skuldbinding gagnvart NATO hafi forgang og þar sem Ísland er í NATO getur ESB ekki “yfirboðið” eða breyta þeim skyldum sem við höfum nú þegar gengist við sem stofnaðilar að NATO.. Litli kallinn við borðið En gefum okkur að Ísland sé innan ESB og það komi tillaga að því að stofna evrópskan her, hvað næst? Til að gera slíkt þarf samþykki frá öllum aðildarríkjum, sem þýðir að Ísland, eða það sem andstæðingar kalla „litla kallinn við borðið“, hefur fullt neitunarvald. Meirihlutaatkvæði getur ekki þvingað þjóð til að gerast hluti af evrópskum her gegn vilja sínum. Gefum okkur að öll aðildarríki segi já. Ísland þar með talið. Þá kemur seinni tryggingin í ljós. Þótt Ísland myndi samþykkja að ESB mætti þróa sameiginlegar varnir kemur 42. gr. aftur til álita. Hún segir að samstarf megi aldrei ganga gegn sérstöðu ríkja. Við getum verið við borðið, við getum verið sammála um að Evrópa þurfi að verja sig en það myndi samt útiloka að við yrðum þvinguð til að mæta vopnuð. Við yrðum ekki bara með neitunarvald um hvort eitthvað væri gert, heldur hefðum við stjórnarskrárvarinn rétt á að ákveða hvernig við leggðum okkar af mörkum. Samþykkt án andmæla. Til að kóróna allt saman þá liggja staðreyndirnar fyrir í skjölum frá síðustu aðildarviðræðum Íslands. Þar var kafli um varnarmál opnaður og lokaður á þeim forsendum að Ísland væri og yrði áfram herlaus þjóð. ESB viðurkenndi þessa sérstöðu okkar án andmæla. Ísland myndi aldrei vera neytt til að fjármagna vopnakaup. Ísland yrði aldrei þvingað til þess að stofna her. Okkar framlag gæti farið í sjúkrabúnað, jarðsprengjueyðingar, hlífðarbúnað og mannúðaraðstoð. Við gætum ávallt tryggt að okkar framlag væri alltaf í takt við okkar markmið sem friðarsinnuð þjóð. Höfundur er stjórnarmaður Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Sjá meira
Nei Í umræðunni um Evrópusambandið undanfarið hefur verið rætt um þann möguleika hvort Íslendingar þurfi að manna „evrópskan her“ ef við skyldum ganga þangað inn. Fjallað hefur verið um þetta eins og staðreynd, sem vekur skiljanlega upp ótta. En staðreyndin er hins vegar sú að þetta er ekki rétt. Í 42. gr. sáttmála um Evrópusambandið kemur skýrt fram að ESB virðir stjórnskipulega sérstöðu ríkja. Ísland er herlaust land Þar segir líka að skuldbinding gagnvart NATO hafi forgang og þar sem Ísland er í NATO getur ESB ekki “yfirboðið” eða breyta þeim skyldum sem við höfum nú þegar gengist við sem stofnaðilar að NATO.. Litli kallinn við borðið En gefum okkur að Ísland sé innan ESB og það komi tillaga að því að stofna evrópskan her, hvað næst? Til að gera slíkt þarf samþykki frá öllum aðildarríkjum, sem þýðir að Ísland, eða það sem andstæðingar kalla „litla kallinn við borðið“, hefur fullt neitunarvald. Meirihlutaatkvæði getur ekki þvingað þjóð til að gerast hluti af evrópskum her gegn vilja sínum. Gefum okkur að öll aðildarríki segi já. Ísland þar með talið. Þá kemur seinni tryggingin í ljós. Þótt Ísland myndi samþykkja að ESB mætti þróa sameiginlegar varnir kemur 42. gr. aftur til álita. Hún segir að samstarf megi aldrei ganga gegn sérstöðu ríkja. Við getum verið við borðið, við getum verið sammála um að Evrópa þurfi að verja sig en það myndi samt útiloka að við yrðum þvinguð til að mæta vopnuð. Við yrðum ekki bara með neitunarvald um hvort eitthvað væri gert, heldur hefðum við stjórnarskrárvarinn rétt á að ákveða hvernig við leggðum okkar af mörkum. Samþykkt án andmæla. Til að kóróna allt saman þá liggja staðreyndirnar fyrir í skjölum frá síðustu aðildarviðræðum Íslands. Þar var kafli um varnarmál opnaður og lokaður á þeim forsendum að Ísland væri og yrði áfram herlaus þjóð. ESB viðurkenndi þessa sérstöðu okkar án andmæla. Ísland myndi aldrei vera neytt til að fjármagna vopnakaup. Ísland yrði aldrei þvingað til þess að stofna her. Okkar framlag gæti farið í sjúkrabúnað, jarðsprengjueyðingar, hlífðarbúnað og mannúðaraðstoð. Við gætum ávallt tryggt að okkar framlag væri alltaf í takt við okkar markmið sem friðarsinnuð þjóð. Höfundur er stjórnarmaður Viðreisnar í Reykjavík.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun