Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar 17. apríl 2026 09:00 Ég býð mig fram á B – lista stjórnar Verkalýðsfélags Suðurlands í komandi kosningum. Af hverju er ég að bjóða mig fram til stjórnar félagsins? …Það er eðlilegt að spurt sé. Svarið er í raun einfalt. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að hver einasta stjórn eigi að fá mótframboð, þó ekki væri nema til að skerpa fókusinn á því sem raunverulega skiptir máli. Mótframboð getur verið hollt fyrir lýðræðið, skapað nauðsynlega umræðu, veitt aðhald og hvatt til þess að hlustað sé betur á raddir félagsmanna. Mér hefur fundist fókus félagsins á undanförnum árum að einhverju leyti færast frá kjarnahlutverkinu — þeirri baráttu sem við eigum að standa saman í gagnvart atvinnurekendum — yfir í rekstur sumarbústaða og íbúða. Þótt slík þjónusta geti vissulega skipt máli, má hún ekki verða til þess að meginhlutverk verkalýðsfélagsins falli í skuggann. Hagsmunabarátta félagsmanna á alltaf að vera í fyrsta sæti. Ég hef starfað sem öryggistrúnaðarmaður í mörg ár og unnið náið með trúnaðarmönnum að ýmsum hagsmunamálum. Sú reynsla hefur kennt mér margt um það sem brennur á fólki á vinnumarkaði og sýnt mér hversu mikilvægt það er að rödd félagsmanna heyrist skýrt. Ég tel því að ég hafi bæði reynslu og vilja til að leggja mitt af mörkum í þágu félagsins og félagsmanna þess. Eitt af því sem ég tel sérstaklega mikilvægt er að þeir félagsmenn sem ekki hafa íslensku að móðurmáli hafi skýran málsvara innan félagsins. Í félagi eins og okkar, þar sem stór hluti félagsmanna er af erlendum uppruna, skiptir það verulegu máli. Við vitum að tungumálaörðuleikar og takmarkaður skilningur á reglum og réttindum geta orðið til þess að fólk standi verr gagnvart atvinnurekendum. Það er óásættanlegt. Félagið á að vera sterkur bakhjarl fyrir allt sitt fólk, óháð uppruna eða tungumáli. Ég er einnig sannfærður um að allir eigi að geta lifað sómasamlegu lífi af launum sínum. Það er einfaldlega ekki boðlegt í landi eins og okkar að stór hópur fólks á lægstu launum nái ekki endum saman. Það er ekki aðeins efnahagslegt mál, heldur réttlætismál. Ef ég get lagt eitthvað af mörkum til að breyta því, þá er ég tilbúin til þess. Ástæðan fyrir því að ég býð mig fram er að mér er ekki sama. Vegna þess að ég trúi því að félagið eigi ávallt að standa vörð um grunnhlutverk sitt. Þess vegna vil ég beita mér fyrir öflugra, réttlátara og aðgengilegra félagi fyrir alla félagsmenn. Ný rödd – sterkari rödd Nýtum kosningaréttinn Höfundur er í framboði fyrir B-lista stjórnar Verkalýðsfélags Suðurlands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar