Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. apríl 2026 18:12 Til stendur að endurskoða P1-svæðið. Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í dag tillögu um að endurskoða gjaldsvæði bílastæða borgarinnar og útfærslu gjaldskyldunnar. Hluta P2-stæða verði breytt í P3.
Tillögurnar sem voru samþykktar voru að endurskoða gjald á gjaldsvæði P1 og verður hluta P2-svæða breytt í P3. Munurinn er að á P3-svæðinu er ekki gjaldskylda um kvöld og helgar. Þá á að endurskoða útfærslu á gjaldskyldu á sunnudögum. Borgarstjórn samþykkti einnig að endurskoða gjaldskyldu á íbúasvæðum með það að markmiði að gera íbúakort sveigjanlegri og einfalda umsóknarferlið. Að lokum verður ráðist í markvissa kynningu á bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar og aðgengi að þeim. Þegar vinnunni við breytingarnar á gjaldskrá og gjaldskyldu er lokið verða þær sendar í samráðsgátt. „Sérstaklega skal gera íbúum og hagsmunaaðilum viðvart á þeim svæðum sem breytingarnar hafa áhrif á,“ segir í fréttatilkynningu frá borginni. Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram upprunalegu tillöguna en í henni fólst til að mynda að gjaldskylda á gjaldsvæðum P1 og P2 yrði felld niður eftir klukkan 18 virka daga auk gjaldskyldu á sunnudögum. Hinsvegar hlaut tillagan ekki náð meirihlutans og var að endingu breytingartillaga meirihlutans samþykkt. Tillaga meirihlutans er líkt og er lýst er hér fyrir ofan. Það sem var til dæmis í báðum tillögunum var að endurskoða gjald á gjaldsvæði P1 og að tillögurnar myndu fara í samráð íbúa og hagsmunaaðila. Einnig sammæltust þau um að ráðast í markvissa kynningu á bílastæðahúsum borgarinnar og bæta íbúakortin. Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Bílastæði Borgarstjórn Tengdar fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Í samfélagsmiðlagjörningi ekur Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, niður Austurstræti þar sem hann furðar sig á því að þar séu engin bílastæði. Austurstræti hefur verið göngugata síðan í september og því er ólöglegt að aka bíl niður götuna, sem Miðflokksmaðurinn gerir þó. 12. apríl 2026 20:43 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Sjá meira
Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Í samfélagsmiðlagjörningi ekur Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, niður Austurstræti þar sem hann furðar sig á því að þar séu engin bílastæði. Austurstræti hefur verið göngugata síðan í september og því er ólöglegt að aka bíl niður götuna, sem Miðflokksmaðurinn gerir þó. 12. apríl 2026 20:43