„Þetta er erfiður mánudagur“ Eiður Þór Árnason skrifar 13. apríl 2026 15:37 Ólafur Jóhann Borgþórsson er prestur og framkvæmdastjóri Herjólfs. Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni.
Framkvæmdastjóri Herjólfs segir enn óljóst hversu umfangsmikil eða alvarleg bilunin er. Næsta skref sé að fá mann frá framleiðanda vélarinnar í Noregi sem muni greina vandann og meta hvernig þurfi að bregðast við. Maðurinn sé væntanlegur til landsins á morgun. „Í framhaldinu af því þá vonandi vitum við fljótt hversu umfangsmikil viðgerðin verður og hvenær verður hægt að fara í þetta,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson framkvæmdastjóri. Mögulega þurfi að fá varahluti í vélina senda erlendis frá eða hreinlega skipta henni út. Herjólfur í Hafnarfjaðarhöfn.Vísir/vilhelm Staðan erfið í Landeyjahöfn Ólafur segir bilunina hafa komið upp í öðrum rafmótor skipsins sem keyri nú á takmörkuðu afli. Bilunin hafi ekki áhrif á hina skrúfuna í skipinu en geri það að verkum að ferjan sigli hægar og sé um hálftíma lengur á leiðinni við núverandi veðurfarsaðstæður sem teljast nokkuð góðar. Bilunin hafi uppgötvast í siglingu Herjólfs á laugardagskvöld. „Svo vorum við að fá fregnir af því líka að dýpi í Landeyjahöfn er ekki gott þannig að hún er ekki að fara að opna allavega á næstunni. Þannig að það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag, þetta er erfiður mánudagur.“ „En vonandi fer nú að vora hjá okkur og bæði komum við skipinu fljótt og vel í samt lag og getum farið vonandi að sigla til Landeyjahafnar áður en mjög langt um líður.“ Fréttin hefur verið uppfærð með viðtali við framkvæmdastjóra.
Vestmannaeyjar Herjólfur Landeyjahöfn Ölfus Samgöngur Rangárþing eystra Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira