Drengurinn kominn heim til sín Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. apríl 2026 14:37 Verslun Olís í Varmahlíð var lokað það sem eftir lifði dags enda starfsfólk í áfalli eftir slysið. Vísir Drengur á fjórða aldursári sem ekið var á fyrir utan söluskála Olís í Varmahlíð í Skagafirði fyrir rúmum tveimur vikum hefur verið útskrifaður af Landspítalanum. Hann er kominn heim í faðm föður síns og móður.
Það var sunnudaginn 29. mars sem fjölskyldan, sem búsett er í Reykjavík, var á ferðalagi fyrir norðan og stoppaði í Varmahlíð. Þegar móðirin og drengurinn stóðu fyrir utan söluskálann, rétt við innganginn, vildi svo illa til að fólksbíl var ekið á mæðginin og varð drengurinn fyrir alvarlegum meiðslum við áreksturinn. Samkvæmt heimildum fréttastofu er talið að um algjört óhapp hafi verið að ræða. Ökumaður á sjálfskiptum bíl á bílastæðinu ók á mæðginin og mun hafa verið sjálfur í miklu áfalli eftir slysið. Svo vel vildi til að á svæðinu var slökkviliðsmaður og meðlimur í björgunarsveit í Skagafirði. Sá ætlaði að fara að kaupa í matinn þegar hann sá að eitthvað mikið var að fyrir utan verslunina. Drengurinn var illa slasaður á höfði og var hlúð að honum á meðan þess var beðið að sjúkrabílar frá Sauðárkróki kæmu á vettvang. Samkvæmt heimildum fréttastofu þótti fólki á svæðinu aðdáunarvert hversu vel foreldrum drengsins gekk að halda ró sinni á svo erfiðu augnabliki. Þyrla Landhelgisgæslunnar og sjúkraflugvél Norlandair voru ræstar út og voru mæðginin flutt með flugvélinni frá Sauðárkróki á Landspítalann í Reykjavík. Pétur Björnsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra segir rannsókn málsins í fullum gangi. Þá er málið einnig á borði rannsóknarnefndar samgönguslysa.
Skagafjörður Lögreglumál Tengdar fréttir Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Drengurinn sem varð fyrir bíl við söluskála í Varmahlíð hefur verið útskrifaður af gjörgæslu og liggur nú á almennri sjúkradeild. Móðir drengsins hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi. 7. apríl 2026 12:20 Drengur á fjórða ári á gjörgæsludeild eftir slysið Drengur á fjórða ári er á gjörgæsludeild Landspítalans eftir umferðarslys sem varð við söluskála Olís í Varmahlíð í gær. 30. mars 2026 16:31 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Drengurinn sem varð fyrir bíl við söluskála í Varmahlíð hefur verið útskrifaður af gjörgæslu og liggur nú á almennri sjúkradeild. Móðir drengsins hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi. 7. apríl 2026 12:20
Drengur á fjórða ári á gjörgæsludeild eftir slysið Drengur á fjórða ári er á gjörgæsludeild Landspítalans eftir umferðarslys sem varð við söluskála Olís í Varmahlíð í gær. 30. mars 2026 16:31