Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2026 08:33 Manchester City er sex stigum á eftir toppliði Arsenal en á leik til góða. Liðin mætast um næstu helgi. getty/John Walton Manchester City minnkaði forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í sex stig með öruggum sigri á Chelsea, 0-3, á Stamford Bridge í gær. Alls voru níu mörk skoruð í leikjunum fjórum í gær.
Staðan var markalaus í hálfleik í leik Chelsea og City í gær. Gestirnir kláruðu hins vegar leikinn með þremur mörkum á sautján mínútna kafla í seinni hálfleik. Nico O'Reilly, Marc Guéhi og Jérémy Doku skoruðu mörk City. Klippa: Chelsea - Man City 0-3 Roberto De Zerbi stýrði Tottenham í fyrsta sinn í gær. Hann fékk enga draumabyrjun því liðið tapaði 1-0 fyrir nýliðum Sunderland á Leikvangi ljóssins. Nordi Mukiele skoraði eina mark leiksins. Tottenham er í 18. sæti deildarinnar með þrjátíu stig, tveimur stigum frá öruggu sæti þegar sex umferðum er ólokið. Klippa: Sunderland - Tottenham 1-1 Jean-Philippe Mateta var hetja Crystal Palace gegn Newcastle United á Selhurst Park. William Osula kom gestunum yfir á 43. mínútu og þannig var staðan allt þar til sex mínútur voru til leiksloka. Þá jafnaði Mateta og hann skoraði svo sigurmark Palace, 2-1, af vítapunktinum í uppbótartíma. Klippa: Crystal Palace - Newcastle 2-1 Þá gerðu Nottingham Forest og Aston Villa 1-1 jafntefli á City Ground. Villa komst yfir með sjálfsmarki Murillos á 23. mínútu en Neco Williams jafnaði fyrir Forest sjö mínútum fyrir hálfleik. Klippa: Nottingham Forest - Aston Villa 1-1 Öll mörkin úr leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér fyrir ofan.
Enski boltinn Chelsea FC Manchester City Sunderland AFC Tottenham Hotspur Crystal Palace FC Newcastle United Nottingham Forest Aston Villa FC Tengdar fréttir Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Manchester City vann 3-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta síðdegis. Liðið nálgast Arsenal í toppbaráttunni. 12. apríl 2026 17:25 Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Tottenham Hotspur tapaði fyrsta leik sínum undir stjórn Roberto De Zerbi og er því áfram í fallsæti. Þremur leikjum var að ljúka, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 12. apríl 2026 14:50 Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira
Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Manchester City vann 3-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta síðdegis. Liðið nálgast Arsenal í toppbaráttunni. 12. apríl 2026 17:25
Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Tottenham Hotspur tapaði fyrsta leik sínum undir stjórn Roberto De Zerbi og er því áfram í fallsæti. Þremur leikjum var að ljúka, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 12. apríl 2026 14:50