100 ára uppbygging á næstu 15 árum Halla Thoroddsen skrifar 13. apríl 2026 06:30 Rétt rúmlega 100 ár eru liðin frá því að fyrsta hjúkrunarheimilið var opnað á Íslandi. Uppbyggingin hefur meira og minna alla tíð fylgt þörfinni og efnahagslegu svigrúmi samfélagsins hverju sinni. Þjónustan var áður einfaldari og allt annars eðlis en við þekkjum í dag. Síðustu áratugi hefur áherslan svo breyst. Minni stofnanabragur, meiri gæði og fjölbreyttari þjónusta. Hundrað árum síðar eru um 3.000 hjúkrunarrými í rekstri á Íslandi. Áskoranirnar liggja fyrir Verkefnin á komandi áratugum eru ekki ófyrirsjáanleg. Þau liggja fyrir. Aldraðir falla ekki af himnum ofan. Mest aðkallandi verkefnið er skýrt. Það er skortur á hjúkrunarrýmum fyrir þá sem þurfa sólarhringsþjónustu. Samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar mun fjöldi 80 ára og eldri tvöfaldast fram til ársins 2040. Þróunin hefur verið línuleg og stöðug undanfarin áratug en er nú í veldisvexti. Þetta bætist við það neyðarástandið sem nú ríkir. Frá áramótum hafa að jafnaði á annað hundrað manns legið á Landspítala með virkt færni- og heilsumat. Einstaklingar sem eiga lögum samkvæmt rétt á hjúkrunarrými. Að meðaltali bætast 15 manns á viku við þennan lista, bara á Landspítalanum. Í dag eru um 700 manns á biðlista eftir hjúkrunarrými. Þetta er staðan í dag og ástandið mun ekki lagast af sjálfu sér. Hvernig reiknum við þörfina? Þegar við reiknum þörf á hjúkrunarrýmum fram í tímann eru sumar breytur augljósar, aðrar örlítið flóknari. Við vitum hvað það verða margir 80 ára eftir 20 ár. Vissulega þarf að líta til nokkurra þátta en í grófum dráttum verða þeir sem eru 60 ára í dag 80 ára eftir 20 ár, ef guð lofar. Önnur úrræði, forvarnir, fræðsla og aukin heimaþjónusta, eru flóknari breytur að mæla. En jafnvel þó við séum bjartsýn á árangur þessara þátta þá er myndin skýr. Samkvæmt mælaborði KPMG má gera ráð fyrir að þörf verði á 6.400 hjúkrunarrýmum árið 2040. Það er varfærin og bjartsýn spá. Við þurfum að byggja a.m.k. 3500 rými á næstu 15 árum. Það er meira en við höfum byggt síðastliðin 100 ár. Undanfarna áratugi hafa að jafnaði bæst við um 40 rými á ári. Nú þurfum við 200. Sem til einföldunar samsvarar tveimur meðalstórum hjúkrunarheimilum. Á hverju einasta ári. Enn eitt vandamálið Málaflokkur aldraðra situr í vandamálahítinni í samfélaginu. Við vitum flest af vandanum en fáir finna lengi fyrir áhrifunum. En áhrifin eru raunveruleg og fyrir fleiri en fólk gerir sér almennt grein fyrir . Fólk sem á rétt á hjúkrunarrými og umönnun býr við skert lífsgæði síðustu ár ævinnar. Aðstandendur standa vaktina, neyðast til að setja líf sitt á pásu. Tekjur skerðast og álag eykst. Þetta er ekki bara vandi aldraðra. Þetta er fjölskylduvandamál. Þá eru ótalin áhrifin á heilbrigðiskerfið. Einn biðlisti býr til annan. Ef einstaklingur er fastur á spítala og kemst ekki á hjúkrunarheimili þá kemst næsti sem þarf bráðaþjónustu ekki að, rýmin eru takmörkuð. Það er raunverulegt vandamál sem hver sem er getur lent í ef heilsan brestur. Staðan er augljós. Afleiðingarnar eru margvíslegar og snerta tugi þúsunda einstaklinga. Við vitum hvað þarf að gera, við þurfum að byggja meira á næstu 15 árum en við höfum gert á síðustu 100. Það er margt í pípunum en við þurfum allar hendur á dekk til að takast á við verkefnin framundan, fagna frumkvæði og nýjum lausnum. Höfundur er forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjúkrunarheimili Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar