Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Lovísa Arnardóttir skrifar 9. apríl 2026 09:11 Eyjólfur Vilbergsson fuglaáhugamaður sá þessa kríu í Grindavík í gær. Þar sá hann nokkrar kríur á ferð. Eyjólfur Vilbergsson Krían er komin til landsins um tveimur vikum á undan áætlun. Fuglafræðingur segir líklega um met að ræða. Kríur hafa sést bæði við Stokkseyri og Grindavík. „
Ég sá fyrst eina úti við kirkjugarðinn við fjöruna og svo aðra við höfnina. Þær hafa ekki sést svona snemma en þetta er óvenju snemmt, það kom öllum á óvart,“ segir Eyjólfur Vilbergsson fuglaáhugamaður sem sá kríur í Grindavík í gær. Hann segist hafa sent myndirnar sínar á fuglafræðinga til að staðfesta að um hafi verið að ræða kríu og hafi fengið staðfestingu á því. Hann segist hafa verið verulega hissa að sjá kríurnar því yfirleitt séu þær ekki svo snemma á ferð. Jóhann Óli Hilmarsson, ljósmyndari og fuglafræðingur, segist hafa staðfest að um kríu hafi verið að ræða á mynd Eyjólfs í gær og hafi svo sjálfur farið út til að kanna málið. Þá hafi hann séð kríur bæði við Eyrarbakka og Stokkseyri þar sem hann býr. Krían í Reykjavík. Vísir/Vilhelm „Þær hafa aldrei komið svona snemma áður, held ég,“ segir hann og að hann hafi venjulega séð þær í kringum þann 19. apríl. Þær séu því um tíu dögum á undan áætlun. „Þetta er met.“ Hann telur líklegast að það tengist lægðagangi sem hafi verið undanfarið. Kríurnar dvelji í Suður-ís hafi á veturna og komi upp með austurströnd Suður-Ameríku og Norður-Ameríku og lægðirnar undanfarið hafi komið frá Norður-Ameríku. „Þær hafa bara stokkið inn í lægðirnar og látið bera sig hingað,“ segir hann og að í annars konar vindátt hafi feðrin verið lengri og þær þá að koma til landsins í kringum mánaðarmótin apríl/maí. Hann segir þessar veðurfarsbreytingar tengjast loftsbreytingum og þetta hafi haft áhrif á fleiri fugla. Heiðargæsin sé farin að koma um þremur vikum fyrr en fyrir um 30 árum. „Lóan er að koma fyrr og þetta er allt að færast til,“ segir Jóhann Óli Sá nokkrar við Stokkseyri og Eyrarbakka Hann segir fyrri komu fuglanna ekkert endilega áhyggjuefni ef veðurfarið er fínt en loftslagsbreytingarnar séu það. Það hafi samt sem áður gerst að fuglar hafi drepist þegar það hafi komið hret í maí og júní. Hann segir þessa óvæntu snemmkomu kríunnar hafa komið sér verulega óvart og hann hafi farið rakleiðis út til að kanna aðstæður. „Ég sá líka nokkrar við Stokkseyri og Eyrarbakka og staðfesti hjá Eyjólfi sem sá þessa fyrstu. Það voru allir hissa að sjá þetta. Þetta er magnað,“ segir hann að lokum.
Grindavík Fuglar Árborg Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira