Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Stefán Árni Pálsson skrifar 9. apríl 2026 13:01 Kirstófer er í einstaklega góðu formi en hann greinist með Parkinson fyrir tveimur árum. Útvarpsmaðurinn Kristófer Helgason greindist með Parkinsonsveiki fyrir tveimur árum og notar meðal annars hreyfingu til þess að halda henni niðri. Kristófer er þekktastur fyrir þættina Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og er einn af vinsælustu líkamsræktarþjálfurum landsins. Hann stendur til að mynda fyrir vinsælum ketilbjöllunámskeiðum í World Class í Laugum og þar komast færri að en vilja.
Kristófer hefur með líkamsrækt, lyfjum og hollu mataræði náð að halda streitu í lágmarki og með því að halda niðri einkennum veikindanna. Vala Matt hitti Kristófer í Laugum í Íslandi í dag á dögunum. „Það var fyrir réttum tveimur árum. Þá fer ég að taka eftir skjálfta í vinnunni á Bylgjunni þegar ég er að drekka kaffi og er að fara með bollann aftur að borðinu. Þá finn ég fyrir skjálfta. Og svo fóru fínhreyfingarnar aðeins að raskast. Að bursta tennur og hneppa tölu og slíkt. Við fórum að finna fyrir breytingu í því. Þá lét ég athuga þetta og fór í viðamiklar rannsóknir og þá er þetta staðfest,“ segir Kristófer. Einkennin koma aðallega fram í vinstri hendi. Hann segir að hreyfingin hjálpi honum mikið. „Einkennin minnka þegar ég er búinn að æfa og taka vel á því. En ég náttúrulega lifi jú líka með þessu en ég trúi því. Þetta snýst um dópamín og boðefnin í líkamanum. Að vera með Parkinson, þá er ákveðinn skortur á þessum boðefnum. En hreyfingin og átökin, þau hjálpa til við að nýta dópamínið betur.“ Lærifaðirinn Ein af þeim fjölmörgu sem eru hjá Kristófer í styrktaræfingunum er fjölmiðlakonan fyrrverandi og núverandi aðstoðarkona dómsmálaráðherra, Þórdís Valsdóttir. „Ég valdi þessa tíma eða ég má eiginlega segja að tímarnir völdu mig. Ég var að vinna mjög náið með Kristófer og hann er svona lærifaðir minn í útvarpinu en hann er líka lærifaðir minn í ketilbjöllunum. Og hann er náttúrulega ómennskur. Hann er í svo góðu formi og hugsar svo ofboðslega vel um sig að það smitaðist yfir á mig. Hann fékk mig til að prófa fyrir um sex árum og ég var algjörlega heilluð frá upphafi. Þetta eru bara þvílíkt góðar æfingar og ótrúlega fjölbreyttar. Hann er frábær þjálfari og svo er félagsskapurinn líka eiginlega það sem drífur mann áfram á hverjum degi.“ Þórdís segir að hreyfing og heilsusamlegur lífsstíll séu mikilvæg fyrir svo margra hluta sakir. „Auðvitað er maður mjög meðvitaður um fjölskyldusöguna sína. Ég hef misst pabba minn úr krabbameini og auðvitað veit maður bara að heilsusamlegur lífsstíll er mikilvægur. Ég mætti alveg vera duglegri að huga að næringunni samhliða þessu en hreyfingin, hún hefur svo gríðarlega mikil áhrif á líkamann og það er til dæmis þekkt í minni fjölskyldu, svona í kvenlegg, að vera ekki með mjög sterk bein, beinþynning og annað slíkt. Það er bara vísindalega sannað, þótt ég sé nú ekki vísindamaður, að kraftlyftingar, að lyfta þungu, eru gríðarlega góðar til þess að fyrirbyggja beinþynningu síðar meir.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni:
Ísland í dag Heilsa Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira