Um siðferði og veiði Runólfur Ágústsson skrifar 8. apríl 2026 14:00 Veiðar hafa frá upphafi mannkyns verið grundvallarhluti af lífsafkomu fólks – til matar, klæða og lífsviðurværis. Þótt dregið hafi úr mikilvægi þeirra með akuryrkju og búfjárrækt, þá liggur þarna grundvallarréttlæting fyrir því að veiða dýr og fiska. Þetta sjónarmið byggir á hugmyndinni um að manneskjan hafi rétt til að nýta náttúruna, en með ábyrgð og innan marka sjálfbærni. Nátengd þessu varðandi veiði eru gildi eins og hófsemi og virðing, bæði fyrir veiðidýrinu sjálfu og fyrir auðlindinni sem það er hluti af. Margir telja veiðar aðeins réttlætanlegar ef þær eru framkvæmdar af virðingu fyrir veiðidýrinu, þ.e. að forðast óþarfa þjáningu og nýta aflann til fulls. Þetta styður hugmyndina um að veiðar eigi að vera mannúðlegar, með hröðum dauða og án sóunar. Hér koma til skoðunar gildi eins og mannúð, sjálfbærni og umhyggja fyrir lífi. Á Íslandi eru veiðar hluti af hefðum og sjálfsmynd þjóðarinnar: sjósókn, lax- og silungsveiði, hreindýraveiðar og fuglaveiðar. Veiðar skapa tengsl milli kynslóða og viðhald hefðar. Hér höfum við siðferðilega réttlætingu á veiðum út frá gildum eins og menningararfleifð, samfélagstengslum og þekkingarflutningi milli kynslóða. Þessu er mjög vel lýst í grunngildum SKOTVÍS hvað skotveiðar varðar en ætti að gilda um allar veiðar: „Þá er veiðidagur góður þegar hóflega er veitt, með talsverðri líkamlegri áreynslu, vakandi náttúruskyni og sært dýr liggur ekki eftir að kveldi.“ Þessi tilvitnun lýsir þeirri siðferðislegu nálgun hins góða veiðimanns um ábyrga veiði, virðingu fyrir dýrinu og heiðarleika í nýtingunni. Lög um velferð dýra fjalla um veiðar á villtum dýrum og gilda um öll hryggdýr þ.m.t. fiska. Dýr skulu aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti og eftir því sem unnt er án þess að önnur dýr verði þess vör. Forðast skal að valda dýrum óþarfa þjáningum eða hræðslu. Aflífun dýra er ekki heimil sem skemmtiatriði eða keppni. Ávallt skal staðið að veiðum þannig að það valdi dýrunum sem minnstum sársauka og aflífun þeirra taki sem skemmstan tíma. Skylt er veiðimönnum að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aflífa þau dýr sem þeir hafa valdið áverkum. Við veiðar er óheimilt að beita aðferðum sem valda dýri óþarfa limlestingum eða kvölum. Undanskildar ákvæðum laganna um veiðar og aflífun eru hefðbundnar veiðar og föngun á villtum fiski sem ekki þótti raunhæft að fella undir ákvæði frumvarpsins eins og segir í greinargerð Alþingis með því. Þetta var gert þegar að lögin um dýravelferð leystu af hólmi eldri lög um dýravernd. Vísað var til þess að þær aðferðir sem beitt er við veiðar eigi sér langa forsögu og ekki fáist séð að betri aðferðir við veiðarnar séu til staðar. Tekið skal þó fram að einungis veiðar á villtum fiski er undanþegnar í frumvarpinu og gilda því ákvæði frumvarpsins að öðru leyti um villtan fisk og meðferð á honum. Á síðustu árum hefur orðið mikil breyting í sportveiði hérlendis, sérstaklega hvað laxveiðar varðar með svokallaðri veiða og sleppa aðferð. Talsmenn þessa halda því fram að slíkt sé mikilvæg leið til að tryggja sjálfbærni og verndun stofna; með því að sleppa lifandi lax aftur í árnar aukist líkur á að hann taki þátt í hrygningu og viðhaldi þannig náttúrulegri endurnýjun, sem sé sérstaklega mikilvægt á tímum þar sem fiskistofnar eru undir álagi vegna loftslagsbreytinga og umhverfisáhrifa. En er þetta svo? Hverju hefur veiði og sleppa skilað fyrir þær laxveiðiár þar sem slíkt hefur lengst verið stundað. Svarið er að enginn augljós árangur virðist af þessu. Rökin um að nú væri hægt að veiða sama fiskinn oft og bara af þeirri ástæðu myndi veiði augljóslega aukast og að „laxinn ætti að njóta vafans“ virðast ekki standast. Veiði í sleppiám hefur ekki vaxið og í flestum tilfellum minnkað. Nú kann einhver að halda því fram að margar flóknar breytur stýri veiði og að veiðin hefði minnkað enn meira ef ekki hefði verið veitt og sleppt. Því er til að svara að veiði í veiðiám þar sem laxar eru veiddir og ekki sleppt hefur ekki minnkað meira en í sleppiám, heldur í einhverjum tilfellum þveröfugt. Dæmi eru um betri veiði í „ám sem drepa“ en í ám með langa sögu af veiði sleppa eins og til að mynda í hinni fornfræga Vatnsdalsá þar sem algjört veiðihrun virðist vera að eiga sér stað en í engri á hefur veiði og sleppa aðferðinni alfarið lengur verið beitt. Í Vatnsdalsá þar sem áður oft veiddust á annað þúsund laxar á sumri, veiddust einungis 287 fiskar síðasta sumar og eru þar vafalaust margir laxar tvítaldir, vegna þess að þeir „veiðast“ aftur eftir að hafa verið sleppt. Raunveruleg veiði á villtum laxi á Íslandi, þegar Hafrannsóknarstofnun hefur leiðrétt fyrir tvíveiddum fisk, hefur aldrei í sögu laxveiða frá því talningar hófust, verið minni en síðasta sumar eða einungis um 18.300 laxar. Í sumar var yfir 80% veiddra laxa sleppt í íslenskum laxveiðiám og svo er komið að þeir veiðimenn sem drepa sína laxa til að nýta þá eru litnir hornauga. Nýlegar norskar rannsóknir sýna að 10-17% slepptra laxa drepast að meðaltali eftir sleppingu, háð umhverfisaðstæðum. Að undanförnu hafa verið settar fram kenningar af fræðimönnum um að veiða og sleppa hafi skaðleg áhrif á seiðabúskap ánna, hrygning verði of mikil og of mörg seiði berjist um takmarka fæðu í ánum sem ekki nái góðum þroska áður en þau ganga til sjávar. Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur rökstutt þessa kenningu á sannfærandi hátt með rannsóknum m.a. úr Leirvogsá. Veiða og sleppa hefur gjörbreytt eðli stangveiða á Íslandi. Í stað þess að veiðimenn, konur og karlar, veiði fisk og deyði sér og sínum til matar, veiðir nú elíta landsins; síðmiðaldra vel stæðir karlar(eins og sá sem hér skrifar) og „hin íslenska sumarkona“ ekki lengur fisk, heldur meiðir þá, myndar og sleppir síðan eftir að hafa sent sér og sínum Trophymynd á instagram af dýraníðinu. Þetta er tilgangslaus sjálfsupphafning og á ekkert skylt við umhverfisvernd eða sjálfbærni enda eru slíkar veiðar litnar hornauga í löndum eins og Þýskalandi, Sviss og Austurríki þar sem dýraverndarlög (Tierschutzgesetz) banna tilgangslausar veiðar sem þessar þar sem veiðimenn valda sársauka, þjáningu eða skaða án réttlætanlegrar ástæðu. Veiði án nýtingar, sem hefur einungis skemmtun að markmiði, er þannig óheimil í þessum löndum af siðferðilegum ástæðum. Niðurstaða mín um veiða og sleppa eftir að hafa stundað veiðiskap í nærri hálfa öld er: Það að veiða og sleppa er ósiðlegur veiðiskapur sem gengur þvert á tilgang og hefðir veiðimennskunnar. Veiða og sleppa gengur þvert gegn anda laga um dýravelferð. Veiða og sleppa stuðlar ekki að betri eða meiri veiði, heldur mögulega þvert á móti. Þeir sem stunda veiða og sleppa eru ekki veiðifólk sem umgengst bráð sína af virðingu, heldur fólk sem meiðir dýr sér til skemmtunar og upphafningar. Höfundur er framkvæmdastjóri og veiðimaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Runólfur Ágústsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar