Golf

Masters-miðvikudagur á Sýn Sport

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Scottie Scheffler klæðir Rory McIlroy í græna jakkann fyrir ári síðan en þeir hafa unnið tvö síðustu Mastersmót í golfi.
Scottie Scheffler klæðir Rory McIlroy í græna jakkann fyrir ári síðan en þeir hafa unnið tvö síðustu Mastersmót í golfi. Getty/Ben Jared

Fyrsta risamót ársins hefst á morgun, fimmtudag, en það er heldur betur tekið forskot á veisluna á SÝN Sport 2 í dag.

Í stuttu máli má segja að það sé Masters-miðvikudagur á SÝN Sport.

Fjörið byrjar klukkan 16.50 í dag þegar upphitunarþáttur í umsjón Rikka G. hitar upp fyrir mótið með sérfræðingum.

Rikki og félagar munu þar fjalla um stærstu stjörnurnar og rifja upp sögu Masters-mótsins sem fer nú fram í nítugasta sinn.

Strax á eftir, eða klukkan 18.00, hefst Par-3 keppnin.

Par-3 keppnin var fyrst haldin árið 1960 og síðan þá hefur hún jafnan verið spiluð á miðvikudeginum áður en mótið hefst. Par-3 völlurinn var byggður árið 1958. Hann er níu holu völlur og er 970 metrar á lengd.

Alls hafa 94 holur í höggi verið slegnar í sögu keppninnar, en metið var slegið árið 2016 þegar níu voru slegnar. Þá slógu Rickie Fowler og Justin Thomas holu í höggi hvor á eftir öðrum á fjórðu holu, þar sem þeir spiluðu í ráshópi með ríkjandi meistara, Jordan Spieth.

Í þessari keppni mega kylfingar nota börnin sín sem kylfubera sem hjálpar til við að skapa fjölskylduvænt andrúmsloft. Sigurvegari Par-3 keppninnar, sem spiluð er daginn áður en mótið hefst, vinnur kristalsskál.

Eftir að keppninni lýkur verður sýndur heimildaþátturinn „1986“ sem fjallar um sigur Jack Nicklaus á Masters-mótinu árið 1986. Nicklaus vann þá sinn átjánda og síðasta risatitil á atvinnumannaferlinum með sögulegum sigri með eins höggs mun. Hann lék lokahringinn á 65 höggum (−7), þar af síðari níu holurnar á 30 höggum (−6), og endaði með heildarskor upp á 279 högg (−9). Þá 46 ára gamall varð hann elsti sigurvegari Masters-mótsins og sá næstelsti til að sigra á risamóti.

Að lokum er á dagskrá „Meistaraverk Rory McIlroy“ sem er viðtalsþáttur þar sem Norður-Írinn Rory McIlroy fer yfir sigurinn á Masters 2025. McIlroy kláraði alslemmuna með sigri sínum í fyrra og hafði þar með unnið öll risamótin en aðeins fimm aðrir hafa náð því í sögunni.

Á morgun hefst síðan bein útsending frá fyrsta degi Mastersmótsins 2026 klukkan 17.00 á SÝN Sport. Sýnt verður beint frá öllum keppnisdögum mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×