Sagði dómarann láta eins og hann væri á túr Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 08:01 Neymar var mjög pirraður eftir tapleik hjá Santos en kom sér í leið í vandræði. Getty/Marco Buenavista Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar Junior kom sér í vandræði eftir að hann lét pirring út í dómgæslu teyma sig út á mjög þunnan ís í brasilíska fótboltanum á dögunum
Neymar gæti átt yfir höfði sér langt bann og sekt eftir umdeild ummæli sín um dómarann í kjölfar leiks Santos og Clube do Remo. Það sem byrjaði sem íþróttaleg gagnrýni á gæði dómgæslunnar breyttist fljótt í samfélagslegt deilumál vegna niðrandi og kynferðislegs tóns sem knattspyrnumaðurinn notaði í ummælum sínum eftir leik. “Acordou de chico e veio assim pro jogo” - como é fácil replicar expressões sexistas e preconceituosas. Por anos as mulheres foram constrangidas por menstruarem. Um simples processo BIOLÓGICO visto como algo sujo, flutuações hormonais e dores físicas invalidadas. Há quem defenda. pic.twitter.com/HWubLWGOJ7— Mariana Pereira (@maripereira_j) April 3, 2026 Neymar leyndi ekki gremju sinni yfir frammistöðu Savio Pereira Sampaio, dómara leiksins. „Hann er svona dómari sem vill vera stjarna leiksins. Hann sýnir öllum leikmönnum mikla vanvirðingu,“ sagði framherjinn, sýnilega í uppnámi yfir ákvörðunum sem teknar voru á vellinum. Hins vegar var það persónuleg árás hans á dómarann sem kveikti í samfélagsmiðlum og brasilískum fjölmiðlum. „Ég held að dómarinn hafi verið á túr og þess vegna dæmdi hann leikinn svona. Það var ekki einu sinni hægt að tala við dómarann, maður var hunsaður,“ sagði leikmaðurinn og olli samstundis mikilli reiðibylgju í heimalandi sínu. Þessi ummæli eru niðrandi í garð kvenna o hann var að nota þau til að gagnrýna karlkyns dómara. Þau gætu leitt til rannsóknar samkvæmt brasilískum íþróttalögum. Orðalagið sem Neymar notaði er gamalt slanguryrði sem sögulega hefur verið tengt við tíðahring kvenna og gefur í skyn tilfinningalegan óstöðugleika. Þetta er almennt talið móðgandi og mismunandi. Ef formleg kvörtun verður lögð fram gæti Neymar átt yfir höfði sér tvo til tólf leiki en það fer allt eftir úrskurði yfirvalda. Slíkt bann yrði mikið áfall fyrir Santos og gæti haft áhrif á þátttöku Neymars í komandi keppnum, þar á meðal heimsmeistaramótinu 2026. Hann dreymir um að fá að fara með á HM en var ekki valinn í marshópinn og hefur ekki spilað landsleik síðan í október 2023. View this post on Instagram A post shared by AZR Sports (@sportsazr)
Brasilía HM 2026 í fótbolta Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sjá meira