Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Agnar Már Másson skrifar 31. mars 2026 23:05 Evrópumenn voru æfir yfir makrílsamningi Íslendinga, Breta, Norðmanna og Færeyinga sem samþykktur var í desember. Nú hefur ESB heimilað ofveiðar til að koma til móts við franska útgerðarmenn. vísir/jse Evrópusambandið fylgir fordæmi Íslands og hefur heimilað ofveiði á makríl í Norður-Atlantshafi, þvert á ráðleggingar vísindamanna og Alþjóðahafrannsóknarráðsins. Framkvæmdastjóri Icelandic Sustainable Fisheries lýsir áhyggjum af framtíð makrílstofnsins og segir ljóst að með þessu áframhaldi geti stofninn ekki endurnýjað sig.
Í desember hafði Evrópusambandið upphaflega ákveðið að fara eftir vísindalegum ráðleggingum Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) um að hámarkskvóti fyrir makríl á Norður-Atlantshafi skyldi dragast saman um 70 prósent árið 2026 miðað við 2025. En franska dagblaðið Le Monde greindi frá því í gær, mánudag, að ESB hefði samþykkt að víkja frá ráðleggingum ICES og þess í stað minnka kvótann um aðeins 48 prósent, frekar en 70, til þess að hann sé í samræmi við þann hámarkskvóta sem Ísland, Bretland, Noregur og Færeyjar settu sér í desember, þegar íslensk stjórnvöld hömpuðu sínu fyrsta samkomulagi um makrílveiðar. „Þýðir það að stofninn nær ekki að endurnýja sig“ Í lok síðasta árs lagði Alþjóðahafrannsóknaráðið til að makrílkvóti fyrir árið 2026 yrði 174 þúsund tonn, en fjórhliða samkomulag Íslands gerir ráð fyrir 299 þúsund tonnum, sem er um 72 prósentum umfram ráðleggingar ICES. Kristinn Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Icelandic Sustainable Fisheries, sem heldur utan um sjálfbærnivottanir fyrir íslenskar fiskveiðar, lýsir áhyggjum af ofveiðum makrílsins í samtali við Vísi. „Ég held að eitt það mikilvægasta sem þarf að gera sé að fara eftir ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins af því að hún leggur til veiðar í samræmi við sjálfbæra möguleika hvers stofns,“ segir Kristinn. „Ef að það er farið yfir ráðgjöfina, þannig að stofninn og veiðarnar á stofninum geta ekki talist sjálfbærar, þýðir það að stofninn nær ekki að endurnýja sig.“ Vöruðu við ofveiðum en heimila svo ofveiðar sjálf Diplómatar í Brussel voru ekki sáttir við fjórhliða makrílsamning Íslands og gaf Evrópusambandið út yfirlýsingu í desember þar sem löndin fjögur sem komu að samningnum voru krafin svara um hvers vegna ESB hafi ekki verið haft með í ráðum. Sambandið lýsti þar áhyggjum af því að fyrirkomulagið kynni að stefna makrílstofninum í hættu og grafa undan samkeppni við sjávarútveg í aðildarlöndum ESB. Sjá einnig: Makrílveiðar Fulltrúar franskra fiskiútgerða kvörtuðu sérstaklega undan því að löndunum fjórum væri heimilt að veiða um of og samt flytja fiskinn til Evrópulanda, sem græfi undan samkeppni, samkvæmt frönsku fréttaveitunni AFP að því er France24 greinir frá. Le Monde greinir enn fremur frá því að þar sem ekki tókst að ná samkomulagi við Ísland, Bretland, Norðmenn eða Færeyinga, hafi ESB-lönd frekar ákveðið að lækka kvótann um aðeins 48 prósent í samræmi við samkomulag Íslands. Þá víkur blaðið einnig stuttlega að því að fiskveiðar yrðu líklegast eitt mesta hitamálið skyldu Íslendingar kjósa að taka aftur upp viðræður við Evrópusambandið í ágúst. „Við bara vitum betur“ Kristinn hjá Icelandic Sustainable Fisheries heldur áfram og segir að til að fá og viðhalda sjálfbærnivottun þurfi fiskveiðistjórnunarkerfið að vera trúverðugt og skilvirkt, en þegar þjóðir fara ekki eftir samningum og veiða stöðugt umfram ráðgjöf sé kerfið greinilega ekki skilvirkt. „Meðan enginn er að fara eftir þeim samningum sem eru gerðir og veiða sífellt yfir ráðgjöfinni, þá er ekki heldur hægt að segja að fiskveiðistjórnunarkerfið sé skilvirkt,“ bætir Kristinn við. „Öll skref sem eru tekin til þess að koma böndum á ástandið eru góð skref,“ segir Kristinn. „Í rauninni er það bara þannig að við ofveiðum ekki. Við bara vitum betur.“
Makrílveiðar Evrópusambandið Sjávarútvegur Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira