Blaðamanni rænt í Írak Freyja Þórisdóttir skrifar 31. mars 2026 19:38 Herstöðvar írakska hersins í borginni Habbaniyah voru lagðar í rúst í loftárásum síðasta miðvikudag. AP Erlendum blaðamanni hefur verið rænt í Írak en innanríkisráðuneytið þar hefur staðfest mannránið. Það gat ekki veitt nokkrar upplýsingar um hver blaðamaðurinn er eða hverslenskur.
Ráðuneytið sagði, í yfirlýsingu á þriðjudag, að blaðamanninum hafi verið rænt af „óþekktum einstaklingum“ í Bagdad. Þessu greinir Katarski fjölmiðillinn Al Jazeera frá en þetta hafa þeir eftir íröksku ríkisfréttastofunni. Einn handtekinn Í yfirlýsingunni frá ráðuneytinu segir einnig að bifreið mannræningjanna hafi fundist og að einn hafi verið handtekinn. „Eftirför og leitaraðgerðir leiddu til þess að bifreið í eigu mannræningjanna fannst, en hún valt þegar þeir reyndu að flýja. Öryggissveitum tókst að handtaka einn hinna grunuðu og leggja hald á eina af bifreiðunum sem notuð var við glæpinn,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni. Ráðuneytið staðfesti að unnið væri að því að hafa uppi á öðrum sem komu að málinu, tryggja það að blaðamaðurinn verði látinn laus og grípa til allra nauðsynlegra lagalegra aðgerða gegn þeim sem tóku þátt í mannráninu. Ekki megi beina spjótum að erlendum gestum „Rannsókn stendur enn yfir til að afhjúpa að fullu aðstæður atviksins og frekari upplýsingar verða veittar síðar,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins samkvæmt íröksku fréttastofunni. Innanríkisráðuneytið hafi loks lagt áherslu á og ítrekað skuldbindingu sína um að það muni ekki líða neinar tilraunir til að grafa undan öryggi erlendra gesta og að öryggissveitir þess muni áfram standa vörð og sýna einurð við að elta uppi þá sem brjóta lög og draga þá fyrir rétt.
Írak Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira