KA sendi Eyjamenn í sumarfrí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2026 18:45 Ágúst Elí Björgvinsson var magnaður í báðum leikjunum. Vísir/Diego KA-menn tryggðu sér sæti í undanúrslitum Olísdeildar karla í handbolta í kvöld eftir eins marka sigur á ÍBV í KA-húsinu.
KA vann leikinn 25-24 eftir að hafa verið 13-11 yfir í hálfleik. Dagur Gautason skoraði sigurmarkið stuttu fyrir leikslok og Ágúst Elí Björgvinsson varði svo lokaskot Eyjamanna. KA vann fyrsta leikinn úti í Vestmannaeyjum sem var tvíframlengdur og þar með einvígið 2-0 eftir þennan sigur í kvöld. KA mætir annaðhvort Val eða HK í undanúrslitaeinvíginu en þau mætast í annað skiptið í kvöld eftir að Valur vann fyrsta leikinn í framlengingu. Dagur Gautason og Einar Birgir Stefánsson voru markahæstir hjá KA með fimm mörk hvor en Bjarni Ófeigur Valdimarsson var með fjögur mörk. Ágúst Elí Björgvinsson varði mjög vel í marki KA, samtals nítján skot þar af þrjú víti. Hann var án efa besti maðurinn í þessu einvígi. KA fékk tíu fleiri varin skot í leiknum í kvöld þökk sé honum. Dagur Arnarsson var markahæstur hjá ÍBV með sex mörk en þeir Hákon Daði Styrmisson og Elís Þór Aðalsteinsson skoruðu fimm mörk hvor. Leikurinn var jafn í upphafi en Eyjamenn voru tveimur mörkum yfir, 10-8, þegar innan við tíu mínútur voru til hálfleiks. KA-menn unnu lokakafla hálfleiksins 5-1 og voru 13-11 yfir í hálfleik. KA-menn voru fjórum mörkum yfir, 19-15, þegar minna en tuttugu mínútur voru til leiksloka. Eyjamenn náðu 4-1 spretti og munurinn var allt í einu orðinn bara eitt mark, 20-19, og korter var eftir af leiknum. Lokamínúturnar voru æsispennandi en KA-menn voru sterkari á lokasprettinum, ekki síst vegna markvörslu Ágústar.
Olís-deild karla KA ÍBV Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira