Tónlist

Falinn gjóður vann Músík­til­raunir

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Aron, Baldur og Þorri skipa vinningshljómsveitina Falinn gjóður. 
Aron, Baldur og Þorri skipa vinningshljómsveitina Falinn gjóður.  Músíktilraunir

Hljómsveitin Falinn gjóður stóð uppi sem sigurvegari Músíktilrauna 2026. Í öðru sæti var djasstríóið Brenninetla og í þriðja sæti var tónlistarkonan Lára. 

Sigurbandið Falinn gjóður skipa þeir Aron Elí Arnarsson sem lék á bassa og söng, Baldur Þórarinsson sem lék á hljómborð og söng og Þorri Hrafnsson sem lék á rafmagnsgítar.

Í frétt á vef Músíktilrauna segir að 31 atriði hafi tekið þátt að þessu sinni og ellefu atriði komist á úrslitakvöldið. 

„Mikil fjölbreytni var í stefnum og stílum atriðanna og aðsókn á bæði undan- og úrslitakvöld var með eindæmum góð, sérstaklega með tilliti til veðurs sem var vægast sagt skrautlegt, og mátti ekki tæpara standa að allir keppendur kæmust á svæðið,“ segir í fréttinni.

Veitt voru verðlaun í nokkrum flokkum en þau dreifðust svo:

1. verðlaun: Falinn gjóður

2. verðlaun: Brenninetla

3. verðlaun: Lára

Hljómsveit fólksins: Gammosíur

Söngvari

Lára Björk Hall – Gammosíur

Gítarleikari Músíktilrauna

Stígur Grendal Sævarsson – Brenninetla

Bassaleikari Músíktilrauna

Úlfhildur Júlía Stephensen – Gammosíur

Hljómborðsleikari Músíktilrauna

Baldur Þórarinsson – Falinn gjóður

Trommuleikari

Andri Eyfjörð – Myrkviði

Rafheili Músíktilrauna

Lára Rún Eggertsdóttir – Lára

Höfundaverðlaun FTT

Útumallt & appelsín

Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku

Myrkviði






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.