Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Lovísa Arnardóttir skrifar 26. mars 2026 09:25 Starfsfólk vetrarþjónustu borgarinnar mætti snemma til vinnu og verður í vinnu í allan dag. Vísir/Vilhelm Hjalti J. Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu hjá Reykjavíkurborg, segir vel ganga að halda helstu stofnleiðum auðum. Vetrarþjónusta fari á fullt um hádegisbil svo helstu stofnæðar, fyrir bíla, gangandi og hjól, verði greiðar þegar umferð hefst að nýju þegar viðvörun rennur úr gildi um 13. „
Fólk virðist hafa tekið tilmælum vel,“ segir Hjalti en víðast hvar er verulega lítil umferð. „Skyggni er mjög lélegt og það er alltaf að auka við veðrið. Skyggnið er verra eftir því sem þú verður austar og norðar. Við erum að halda úti þjónustunni, okkar fólk er að reyna að ryðja og salta stofn- og tengibrautir og það gengur ágætlega að mér skilst af því að umferðin er lítil,“ segir hann. „En gagnsemin verður mest þegar þessu veðri er að ljúka“, segir hann. Hann segir vetrarþjónustu meta stöðuna á hverjum tíma og þau ráðist á kerfið þegar þessu slotar. Svo eigi að frysta á morgun og það sé ekki gott. „Við reynum að gera okkar besta til að ryðja stofnaleiðir bæði bílamegin og hjóla- og göngustíga.“ Hjalti hrósar íbúum fyrir að fylgja fyrirmælum. Vísir/Einar Hann segir næsta skammt á laugardag, það verði ekki eins hvasst en það verði hugað að því þegar nær dregur. Hann segir vélarnar vel þola veðrið. Fara á fullt í hádeginu „En það dregur fljótt í og þó að þeir myndu ryðja í gegnum einhvern götukafla í efri byggð yrði hann fljótt aftur ófær því það safnast í ruðningsfarið. Upp úr hádegi setjum við mjög mikinn aukinn damp og þegar við sjáum að þessu er að slota ráðumst við á þetta með hefðbundnu verklagi. Nú fylgjumst við með og eiginlega bíðum þetta af okkur. Það er frábært að sjá hversu vel fólk hefur tekið tilmælum og haldið sig heima,“ segir Hjalti að lokum og segir það gera þeirra verkefni miklu auðveldara. „Það má alveg hrósa fólki mikið fyrir þetta.“ Hægt er að fylgjast með nýjustu vendingum af veðri í vaktinni á Vísi hér að neðan.
Veður Færð á vegum Reykjavík Óveður 26. mars 2026 Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Sjá meira