Kynjakvóti FIFA: „Átt bara að fá starfið á eigin verðleikum“ Aron Guðmundsson skrifar 24. mars 2026 08:01 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, er ein af fáum kvenkyns þjálfurum í efstu deildum kvenna hér á landi. Vísir/Samsett Nýjar reglur settar af Alþjóða knattspyrnusambandinu eiga að fjölga kvenkyns þjálfurum. Reynslubolti hér heima vonar að þær skili tilætluðum árangri en segir einnig þurfa að huga að öðrum þáttum í leiðinni í annars karllægu umhverfi.
Reglurnar, sem kveða á um að starf aðal- eða aðstoðarþjálfara kvennaliða í mótum á vegum FIFA skuli vera sinnt af konu og að lágmarki skuli vera tvær konur í starfsliði hvers liðs, verða innleiddar í skrefum en verða í gildi á heimsmeistaramóti næsta árs og gætu því haft áhrif á þjálfarateymi íslenska kvennalandsliðsins takist liðinu að tryggja sér sæti á HM. Þó svo að kvennafótboltinn hafi verið í mikilli sókn undanfarin eru einfaldlega ekki nógu margar konur þjálfarar, það veldur forráðamönnum FIFA áhyggjum og standa vonir sambandsins til þess að kvenkyns þjálfurum fjölga hratt með þessum breytingum. En er reglubreytingin ein og sér nóg til þess að snúa þróuninni við? „Auðvitað er það pínu sorglegt að það þurfi að setja á reglur varðandi þetta en einhvers staðar þurfum við að byrja. Ef þetta er það sem þarf að gera, þá þurfum við bara að taka á því,“ segir Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, aðstoðarþjálfari kvennaliðs Breiðabliks sem hefur verið viðloðandi þjálfarastörf í meistaraflokki hér á landi undanfarin ár, eftir að skórnir fóru á hilluna, og unnið til fjölda titla. Margir þættir spila inn í Reynsla Ásgerðar af þjálfun í íslenska boltanum mikil en í efstu tveimur deildum kvennaboltans á Íslandi er aðeins að finna einn kvenkyns aðalþjálfara, Söruh Catherine Elnicky, þjálfara Lengjudeildar liðs Völsungs. Eftir því sem næst verður komið starfa síðan fimm kvenkyns aðstoðarþjálfarar hjá liðum í Bestu deild kvenna og Lengjudeildinni samanlagt. Iðulega hefur þetta verið staðan og segir Ásgerður marga þætti geta spilað inn í þegar skoðað er hvers vegna fleiri konur séu ekki í þjálfun toppliða hér á landi. Ásgerður Stefanía (önnur frá vinstri) segir Valskonur var hluti af sigursælu þjálfarateymi hjá Val. Hún er nú svo til nýtekin við starfi aðstoðarþjálfara BreiðabliksVísir/Diego „Áhugasvið, við kannski menntum okkur meira á meðan við erum að spila og ég held að menntunarstig kvenna sé bara töluvert hærra heldur en þeirra sem eru að þjálfa karla megin. Sökum þess að við höfum bara þurft að mennta okkur í gegnum okkar ferilinn því peningurinn er minni í kvennaboltanum. Fyrir konu að hætta í sinni vinnu og fara út í aðalþjálfun held ég að spili alveg einhverja rullu.“ Eru konur að sækjast eftir þessum stöðum? Starf aðalþjálfara kvennaliðs hér á landi sé langt frá því að geta talist sem aðalstarf. „Þetta er langt frá því að vera aðalstarf. Þú getur ekki bara starfað í þjálfun, sérstaklega þegar þú ert aðstoðarþjálfari og ég efast um að það séu margir í fullu starfi sem aðalþjálfarar. Þetta er karlægt umhverfi, það eru fáar konur en svo er líka spurning hvort við konurnar séum að sækjast eftir þjálfarastöðunum. Erum við að sækja um störf eða sitjum við bara til baka og bíðum? Það er kannski líka eitthvað sem við þurfum að skoða innan kvennahreyfingarinnar. Erum við að sækjast eftir þessum stöðum?“ Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Englands, er afar sigursæll þjálfariVísir/Getty Knattspyrnuheimurinn hefur yfir að skipa mörgum öflugum og sigursælum kvenkyns þjálfurum. Þá fullyrðingu má styðja með því að benda á að landslið þjálfuð af kvenkyns þjálfurum standa til að mynda fremst. Enska landsliðið hefur núna tvö skipti í röð orðið Evrópumeistari undir stjórn Sarinu Wiegman. Spænska landsliðið, ríkjandi heimsmeistarar, komust næst því að skáka Englendingum á EM síðasta árs og er liðið þjálfað af Soniu Bermudez. Þá er bandaríska landsliðið þjálfað af goðsögninni Emmu Hayes og í félagsliðaboltanum vann Arsenal Meistaradeild Evrópu undir stjórn hinnar hollensku Reneé Slegers. Fulltrúi Íslands, Elísabet Gunnarsdóttir, er síðan í stóru starfi sem landsliðsþjálfari Belgíu. Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari BelgíuVísir/Getty Átt að fá starf út frá eigin verðleikum Reglubreyting FIFA getur verið af hinu góða en Ásgerður er líka á því að verðleikar hvers og eins þjálfara eigi að ráða för. „Ég er alveg hundrað prósent þar. Þú átt bara að fá starfið á þínum verðleikum ef þú ert nógu góður þjálfari, hvort sem þú sért karl eða kona. En á meðan að við erum að reyna fjölga konum í þessu þá þurfum við að fara einhverja leið. Ef þetta er fyrsta skrefið í því þá er það mjög gott.“ Þessar nýju reglur. Berðu vonir til þess að þær muni hjálpa til við þetta. Að greiða götu kvenna enn frekar í þjálfun? „Já en áhuginn þarf alltaf að vera fyrir hendi. Við þurfum að hafa áhuga á því að stíga það skref að vilja verða þjálfarar og taka þátt í þessu. Vonandi lögum við umhverfið þannig að það geti fleiri konur komið inn í þetta, hvort sem það er í hluta- eða aðalstarfi. Blönduna af þessu þurfum við að hafa í huga.“
FIFA Íslenski boltinn Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Besta deild kvenna Lengjudeild kvenna Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Sport Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Nýbúin að vera valin best á Íslandi og skoraði tvö mörk í Svíþjóð Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Emelía skoraði tvennu í mikilvægum sigri Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn