Frádráttarbært dýraníð Jón Kaldal skrifar 19. mars 2026 12:02 Það var gott að hlusta á Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi. „Við þurfum einfaldlega að svara kalli tímans þegar kemur að því hvernig við umgöngumst dýr og það verður markmiðið með þessari endurskoðun,“ sagði Hanna Katrín. Það er frábært að ráðherra ætli að beita sér fyrir þessari endurskoðun. Hún hefði átt að fara fram fyrir löngu. Að segja og gera Nú þarf hins vegar að beina þeirri spurningu til ráðherra ⸺ og er hér með gert ⸺ hvort þessi endurskoðun eigi bara við um sum dýr og hvort það sé þá í lagi að fara illa með önnur dýr? Eldislax sem var fjarlægður úr Hrútafjarðará eftir að hafa sloppið úr sjókví á sunnanverðum Vestfjörðum. Áverkarnir eru að völdum ómeðhöndlaðs lúsasmits. Þegar lagt er mat á frammistöðu stjórnmálamanna borgar sig alltaf að líta til þess sem þeir gera frekar en að hlusta bara á hvað þeir segja. Og hvað hefur Hanna Katrín gert? Í desember lagði hún fram drög að nýjum lögum um lagareldi þar sem velferð eldislaxanna var veitt svo lítil athygli að samtök dýralækna sem starfa fyrir iðnaðinn sögðu í umsögn sinni: „Það vekur undrun okkar að svo lítil áhersla sé sett á velferð og heilbrigði eldisstofns í drögum að frumvarpi um lög um fiskeldi.“ Svona var ástandið á um 1,7 milljón eldislaxa í sjókvíum Arnarlax og Arctic Fish í Tálknafirði haustið 2023 eftir að fyrirtækin misstu tök á laxalús i kvíunum. Drög Hönnu Katrínar eru nú orðin að frumvarpi sem var dreift til þingmanna síðastliðinn mánudag, tveimur dögum áður en hún sagði í fréttum RÚV að það þyrfti „að svara kalli tímans þegar kemur að því hvernig við umgöngumst dýr.“ Því kalli er ekki svarað í frumvarpinu um lagareldi. Þvert á móti. „Affallagjald“ Ef frumvarp atvinnuvegaráðherra verður að lögum fá sjókvíaeldisfyrirtækin áfram að stunda sitt dýraníð á iðnaðarskala gegn því að greiða það sem ráðherra nefnir „affallagjald“. Það gjald má svo, samkvæmt frumvarpi hennar, telja fram sem rekstrarkostnað og er því frádráttarbært frá tekjuskatti fyrirtækja. Myndin sýnir austfirskan eldislax með vetrarsár. Sjókvíaeldisfyrirtækið Kaldvík starfar á Austjörðum. Matvælastofnun sektaði fyrirtækið í fyrra fyrir brot á dýravelferðarlögum og kærði það til lögreglu fyrir brot á sömu lögum í öðru mun umfangsmeira máli. Þeirri rannsókn er enn ólokið. Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum vonum innilega að Alþingi taki þetta frumvarp atvinnuvegaráðherra og geri á því grundvallarbreytingar. Útgáfan sem var skilað til þingsins er klæðskerasniðin að hagsmunum sjókvíeldisfyrirtækjanna á kostnað náttúru Íslands, lífríkisins, afkomu bændafjölskyldna sem treysta á tekjur af sjálfbærum stangveiðum og eldislaxanna sem þjást í kvíunum. Með öðrum orðum, fullkomin tímaskekkja. Þetta frumvarp má ekki verða að lögum í óbreyttri mynd. Höfundur er talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Kaldal Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar