„Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2026 23:12 Mohamed Salah þakkar stuðningsmönnum Liverpool fyrir hvatninguna og viðtökurnar í kvöld. Getty/ Liverpool FC Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, var skiljanlega mjög kátur eftir 4-0 sigur á Galatasaray í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en Liverpool fór örugglega áfram í átta liða úrslitin. „
Mér líkaði hvernig við spiluðum og mér líkaði hvernig við pressuðum en einnig viðbrögð stuðningsmannanna þegar Galatasaray reyndi að gera það sem ég bjóst við af þeim. Að liggja í grasinu og reyna að drepa niður tempóið,“ sagði Slot við TNT Sports. „Það jákvæða er að við höfum átt góða hálfleiki og svo tíu mínútna kafla þar sem við höfum yfirleitt gefið hinu liðinu tækifæri til að skora en í dag féll ekkert fyrir þá. Ég held að þeir hafi ekki fengið eitt einasta færi. Við héldum áfram að skapa og skapa,“ sagði Slot. Ánægjulegt að halda hreinu „Það er ánægjulegt að halda hreinu, við höfum ekki gefið mörg færi en við fáum á okkur mörk, en í kvöld fengum við ekki einu sinni færi á okkur,“ sagði Slot. Mo Salah skoraði fjórða markið og lagði upp mark tvö og þrjú. Hann bætti þar með fyrir vítaklúður í fyrri hálfleiknum. Segir mikið um hugarfar hans „Ég held að það segi mikið um hugarfar hans að hann klúðraði vítaspyrnunni sem var erfitt augnablik. Hann gaf svo frábæra stoðsendingu og markið hans er bara hans vörumerki,“ sagði Slot. „Það þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum. Anfield sýndi að við getum skapað betri stemningu en Galatasaray á þeirra heimavelli. Stuðningsmenn okkar brugðust við þegar þeir sáu að þeir voru að tefja og það hjálpaði mikið,“ sagði Slot. Verða ekki ánægðir með að mæta okkur Um að mæta PSG í næstu umferð keppninnar: „Við vorum gjörsamlega yfirspilaðir á útivelli á síðasta tímabili og töpuðum svo í vítaspyrnukeppni. Þeir hafa ekki gefið neitt eftir en eftir kvöldið í kvöld verða þeir ekki ánægðir með að mæta okkur,“ sagði Slot.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira